Lífið

Elma Lísa var stjörf og stíf þegar hún horfði á Skaupið

Jakob Bjarnar skrifar
Hjónin Reynir Lyngdal og Elma Lísa Gunnarsdóttir. Reynir leikstýrði Skaupinu og Elma Lísa var aðalleikonan. Þau eru ánægð með hvernig til tókst.
Hjónin Reynir Lyngdal og Elma Lísa Gunnarsdóttir. Reynir leikstýrði Skaupinu og Elma Lísa var aðalleikonan. Þau eru ánægð með hvernig til tókst. Geir Gunnarsson

Hjónin Reynir Lyngdal, leikstjóri Skaupsins, og Elma Lísa Gunnarsdóttir eiginkona hans, aðalleikari Áramótaskaupsins 2021, eru hæstánægð með hvernig til tókst.

Þau voru gestir Bítisins í morgun og hittu þar fyrir afar jákvæða umsjónarmenn sem hrósuðu þessum helsta sjónvarpsþætti landsins í hástert. Hjónin voru spurð hvernig þeim litist á viðtökur og Reynir sagði að þau hafi verið í hálfgerðri sjálfskipaðri einangrun því þau stefni að því að koma sér til útlanda.

Fer ekki inn á Twitter

Elma Lísa sagði spurð að hún reyndi að forðast samfélagsmiðla. „Já, ég hef verið smá þar. Kíki ekki á það, það er aldrei gott.“

Reyndar virðist Skaupið hafa fallið ágætlega í kramið á Twitter þar sem eitt og annað sem ofarlega er á baugi er tekið fyrir. Eins og sést á þessari samantekt Vísis.

Þau hjón sögðust telja að allir listamenn væru viðkvæmir fyrir gagnrýni þó þeir segist ekki vera það. Þeir reyni að vera svalir. „Svo heyrir maður bara það jákvæða. Þess vegna forðast maður Twitter,“ sagði Elma Lísa. Og Reynir telur erfitt að höfða til allra vegna pólaríseringar í samfélaginu.

Reynir og Elma Lísa sögðust sátt við Skaupið. Og margir brandarar þar kölluðu fram hlátur. Til greina hafi komið að taka til umfjöllunar ein 200 atriði, asnalega mikið neikvætt hafi gerst á árinu. „Þetta endaði með því að við skrifuðum 90 sketsa en við gerðum 40. Síðustu tvær vikurnar þá var maður aðallega að vinsa úr, hvað er fyndnara en annað. 

Ég viðurkenni að á gamlárskvöld með G&T í glasi, hló ég að öllum bröndurum nema einum,“ sagði Reynir. Sem vildi þó taka það fram að það hafi verið vegna tæknilegrar útfærslu, spurður um hver þessi eini hafi verið. En vildi meina að ef maður væri að hlæja svona að eigin fyndni, þá hlyti þetta að vera í lagi.

Bannað að meiða

Umsjónarmaður Bítisins var ánægður með að Skaupið hafi ekki verið rætið, eins og hann kallaði það, einhver tiltekinn stjórnmálamaður væri ekki tekinn af lífi og þau hjón sögðu Skaupið fyrir alla. Líka fyrir stjórnmálamenn sem hafa kannski aðeins gert upp á bak. En þau vildu þó kýla uppá við, það megi stjaka við fólki sem ræður og á meira, sem stjórnar þjóðfélaginu og lætur eins og bavíanar. En það megi ekki meiða þá sem minna mega sín, þá hætti atriðin að vera fyndin.

Þetta er í þriðja skipti í röð sem Reynir er leikstjóri Skaupsins og hann segir að þetta venjist illa, að vera undir þessari pressu. „Í fyrra rétti svili minn mér G&T, það voru búnir tveir sketsar og ég leita á drykkinn og hann var búinn. Ég man ekki eftir því að hafa drukkið hann.“

Og Elma Lísa segir pressuna vissulega til staðar, það að vera að leika í þessum þætti sem öll þjóðin horfir á: „Ég var í leiðslu, gat ekki hreyft mig, stíf öll – þetta er skrítið.“


Tengdar fréttir

Sjö fengin til að skapa Ára­móta­skaupið

Höfundar Áramótaskaupsins í ár verða þau Vilhelm Neto, Bergur Ebbi, Hugleikur Dagsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Gagga Jónsdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir. Reynir Lyngdal mun leikstýra Skaupinu líkt og síðastliðin tvö ár.

Inga Sæ­land á­nægð með skaupið: „Ég er búin að marg­hlæja að þessu“

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er hæstánægð með það stóra hlutverk sem hún og hennar flokkur fékk í Áramótaskaupi Ríkisútvarpsins þessi áramótin. Hún er búin að horfa á skaupið þrisvar og hyggst gera það oftar, svo ánægð var hún með það. Hún segist ekki taka það inn á sig að gert hafi verið grín að henni í skaupinu.

Voru nálægt hjónaskilnaði eftir tangónámskeið

Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona og Reynir Lyngdal kvikmyndagerðarmaður kynntust fyrst þegar þau unnu saman á kaffihúsi en voru þá bæði í sambandi og byrjuðu því ekki að deita fyrr en síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.