Lífið

Betty White dagurinn verður haldinn hátíðlegur árlega

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Betty White fær hátíðardag sér til heiðurs.
Betty White fær hátíðardag sér til heiðurs. Getty/ Vincent Sandoval

Stórleikkonan Betty White lést á dögunum og hefur heimabærinn hennar nú búið til hátíðardag henni til heiðurs.

Betty White dagurinn mun verða haldinn í fyrsta skipti á afmælisdaginn hennar þann 17. janúar, þegar hún hefði náð hundrað ára aldri. Bæjarforseti Oak Park í Illanois, gaf út yfirlýsingu um að dagurinn yrði haldinn árlega til að heiðurs uppáhalds dóttur bæjarins. Betty fæddist í bænum árið 1922 en flutti ári síðar til Kaliforníu með fjölskyldunni sinni.

Fólk um allan heim heiðrar minningu hennar.Getty/ JOCE/Bauer-Griffin

Allur bærinn tekur þátt í deginum og mörg fyrirtæki ætla að bjóða upp á sérstök tilboð tengd honum. Bakarí bæjarins ætlar að bjóða upp á stóra afmælisköku og veitingastaðurinn Mickey‘s ætlar að hafa tilboð á uppáhalds matnum hennar. Tilboðið samanstendur af pylsu, frönskum og diet kóki. Það hefur áður verið haft eftir Betty að uppáhalds maturinn hennar væri pylsur, rautt vín, kartöfluflögur og franskar. Einnig verður blásið til veggmyndakeppni af Betty þar sem sigurverkið mun prýða vegg í miðbæ Oak Park.

Það er ekki aðeins heimabærinn sem vill heiðra minningu Betty heldur eru samfélagsmiðlar einnig búnir að hrinda af stað herferðinni #BettyWhiteChallenge. Með áskoruninni eru netverjar hvattir til þess að styrkja gott málefni sem við kemur velferð dýra en málefnið var leikkonunni kært og vann hún mikið með dýrum.

Betty White vann alla sína tíð að velferð dýra.Getty/ Amanda Edwards

Á hundrað ára afmælisdaginn mun koma út heimildarmynd sem var tekin upp til að fagna stórafmælinu hennar skömmu áður en hún lést. Stórstjörnur á borð við Ryan Reynolds, Clint Eastwood, Robert Redford og Betty White sjálf koma fram í myndinni sem heiðrar líf hennar og feril.


Tengdar fréttir

Betty White er látin

„Jafnvel þótt Betty væri að verða 100 ára hélt ég að hún myndi lifa að eilífu,“ segir Jeff Witjas, umboðsmaður og náin vinur leikkonunnar Betty White, sem lést fyrr í dag.

Betty White er látin

„Jafnvel þótt Betty væri að verða 100 ára hélt ég að hún myndi lifa að eilífu,“ segir Jeff Witjas, umboðsmaður og náin vinur leikkonunnar Betty White, sem lést fyrr í dag.

Þau kvöddu á árinu 2021

Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem brátt er á enda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.