„Við vissum af þessu strax í haust þegar þetta kom á samfélagsmiðlum og við tókum það mjög alvarlega. Þá var gert samkomulag við hann að ef það yrði eitthvað meira úr þessu, kærur eða eitthvað slíkt þá myndi hann óska eftir leyfi,“ segir Elín Margrét Stefánsdóttir stjórnarformaður Ísey útflutnings í samtali við fréttastofu. Stundin greindi fyrst frá.
Umræddar ásakanir komu fram í hlaðvarpsþættinum Eigin konur á þriðjudag þar sem Vítalía Lazareva, 24 ára gömul kona, lýsti kynferðisofbeldi sem hún sagðist hafa verið beitt í sumarbústaðarferð í desember 2020.
Vítalía tjáði sig fyrst um meint ofbeldi í röð færslna á samfélagsmiðlum þar sem hún nefndi Ara í þessu samhengi ásamt þremur öðrum karlmönnum. Stundin hefur áður fjallað um að Þórður Már Jóhannesson, stjórnarformaður Festar, sé einn þeirra fjögurra.
Í hlaðvarpsþættinum lýsti Vítalía sumarbústaðarferðinni sem hræðilegri upplifun. Hún hafi farið þangað til að hitta tæplega fimmtugan karlmann, sem hún var þá í ástarsambandi með. Þrír aðrir menn hafi verið þar, allir yfir fimmtugu, og svo farið að þeir hafi káfað henni og stungið fingrum inn í hana í heitum potti.
Að sögn Elínar Margrétar óskaði Ari sjálfur eftir að fara í leyfið. Það sé tímabundið en ekki sé ákveðið hvenær hann komi aftur til starfa. Á meðan muni Einar Einarsson, aðstoðarmaður hans, sinna verkefnum sem Ari hefði annars sinnt. Ástæða leyfisins sé umræðan um meint ofbeldi sem farið hafi fram á samfélagsmiðlum síðustu daga.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Ari einnig stigið til hliðar sem formaður Atvinnuveganefndar Sjálfstæðisflokksins. Þá hefur nafn hans verið tekið út af heimasíðu flokksins þar sem áður stóð að hann væri formaður nefndarinnar.
Fréttastofa hefur ekki náð tali af Ara þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir síðustu daga.
Fréttin var uppfærð klukkan 17:30 með upplýsingum um breytta formannsstöðu Atvinnuveganefndar Sjálfstæðisflokksins.