Yfir sex þúsund Íslendingar hafa notað fjármálaþjónustu Revolut, að sögn fyrirtækisins en með breytingunni geta notendur uppfært í Revolut Bank og opnað innlánsreikninga með innistæðutryggingu.
Revolut Bank veitir nú fjármálaþjónustu í gegnum app í 28 ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu en alls tíu ríku ríki bættust í þann hóp í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Revolut sem státar af yfir 18 milljónum viðskiptavina um allan heim.
Innistæður á innlánsreikningum Revolut Bank eru tryggðar af af innistæðu- og fjárfestingatryggingu litháíska ríkisins fyrir að hámarki 100 þúsund evrur.
Að sögn Joe Heneghan, forstjóra Revolut Bank, er fjártæknifyrirtækið eitt það hraðast vaxandi í heiminum í dag. Með því að hleypa bankanum formlega af stokkunum á Íslandi sé hægt að veita íslenskum notendum aukið öryggi og kynna fleiri nýjar vörur og þjónustur í framtíðinni.
Væntir Revolut þess að það geti veitt betri og öruggari bankaþjónustu en hefðbundnir bankar.
„Vöruhönnun okkar er sú besta sem býðst, við erum með engin falin gjöld, og við erum stanslaust að þróa nýjar og frumlegar fjármálavörur,“ segir Joe Heneghan í tilkynningu.
Fréttin hefur verið uppfærð.