Sótti brotaþola í nuddið: „Ég var ekki til staðar fyrir hana“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. janúar 2022 15:00 Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson við nuddbekkinn. Fram kom í máli matsmanna fyrir dómi að Jóhannes hefði ekki haldið neinar skýrslur um meðferð sína á sjúklingum. Þá væru gögn um menntun hans takmörkuð. Vinkona ungrar konu sem segir Jóhannes Tryggva Sveinbjörnsson hafa brotið á sér í meðferðartíma á stofu hans segist hafa brugðist vinkonu sinni. Hún sótti hana í tímann en segist ekki hafa vitað hvernig ætti að bregðast við. Eftir á að hyggja hefði átt að tilkynna málið til lögreglu.
Aðalmeðferð í máli héraðssaksóknara gegn Jóhannesi Tryggva lauk með málflutningi lögmanna á föstudaginn. Fjölmörg vitni komu fyrir dóminn og gáfu skýrslu. Jóhannes hefur verið sakfelldur fyrir fjórar nauðganir, fékk sex ára dóm í Landsrétti, og er þetta því fimmta málið gegn honum. Jóhannes neitar sök í málinu. Jóhannes er ákærður fyrir nauðgun, í starfi sínu sem nuddari dagana 3. og 5. janúar 2012, á meðferðarstofu sinni í Reykjavík, með því að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við brotaþola, án hennar samþykkis með því að káfa á kynfærum hennar, rassi og brjóstum og setja fingur inn í leggöng hennar, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk. Þá segir í ákæru að hann hafi hann beitt brotaþola ólögmætri nauðung með því að misnota það traust sem hún bar til hans. Tvítugar í ársbyrjun 2012 Ragnhildur Eik Árnadóttir, brotaþoli í málinu, hefur rætt málið í viðtölum í fjölmiðlum. Fyrir dómi sagðist hún hafa leitað til Jóhannesar eftir ráðleggingum móður sinnar eftir að hafa lent í árekstri árið 2010 og slasast. Hún hefði áður verið hjá sjúkraþjálfara í um eitt ár vegna eymsla í baki, en sú meðferð hefði ekki borið árangur. Jóhannes hefði reynst móður hennar vel og því hafi hún ákveðið að leita til hans. Nánar má lesa um vitnisburð Ragnhildar fyrir dómi hér. Vinkona Ragnhildar og jafnaldri var ein þeirra sem bar vitni fyrir dómi á föstudaginn. Þær æfðu saman íþróttir og voru saman í menntaskóla. Þær voru tvítugar þegar meint brot átti sér stað. „Ég sótti hana eftir nuddið og við fórum í smábíltúr. Hún sagði mér frá þessu,“ sagði vinkonan sem bar vitni í gegnum fjarfundabúnað en hún er búsett erlendis. Hún sagði Ragnhildi hafa lýst því þannig að Jóhannes hefði nuddað kynfæri hennar. Þá hefði hann haft á orði, hafði vinkonan eftir Ragnhildi, að nuddið myndi hjálpa henni að njóta kynlífs í framtíðinni og fá fullnægingar. Vissu ekki hvernig þær áttu að haga sér Vinkonan áréttaði að nú væru liðin tíu ár frá atburðum og þetta hefði verið vel fyrir breytingu í samfélaginu sem hafi orðið í kringum #metoo byltinguna. „Maður fattaði ekki hvað þetta var rangt á þessum tíma,“ sagði vinkonan. „En þegar maður hugsar um þetta núna þá hefði hún átt að tilkynna þetta, og ég hefði átt að vera betri vinkona.“ Hún sagði þær hafa brugðist rosalega kjánalega við. „Maður var eitthvað svo vitlaus á þessum tíma,“ sagði vinkonan. Aðspurð um stemmninguna í bílnum þá hefði hún verið óþægileg. „Við hlógum hvað þetta var kjánalegt og óþægilegt,“ sagði vinkonan en áréttaði það hafi ekki verið af því þeim hefði fundist þetta svo fyndið. „Ég veit ekki hvernig maður á að díla við hluti þegar maður veit ekki hvernig maður á að haga sér.“ Mundi eftir SMS-skilaboðum Hún rifjaði upp að Jóhannes hefði sent Ragnhildi SMS-skilaboð eftir tímann og spurt hvort hann hefði nokkuð verið of grófur. Þá hefði hún ekkert spurt Ragnhildi frekar út í málið. „Ég talaði ekkert rosalega um þetta við hana.“ Aðspurð um líðan Ragnhildar í framhaldinu sagði vinkonan að það hefðu alveg komið lægðir hjá henni. Hún vissi þó ekki hvort það væri vegna þessa máls eða ekki. „Ég var ekki til staðar fyrir hana,“ sagði vinkonan. Önnur vitni, þeirra á meðal sálfræðingur sem Ragnheiður leitaði til árið 2018 þegar hún hafði lent á vegg, sagði púslin hafa byrjað að raðast saman þegar Ragnheiður opnaði sig um málið frá 2012. Þá nefndi sálfræðingurinn að Ragnhildur hefði leitað til hennar í júlí 2018 eða þremur mánuðum áður en fjallað var um málið í fyrsta sinn í fjölmiðlum. Steinbergur Finnbogason, verjandi Jóhannesar Tryggva, spurði vinkonuna hvort hún hefði fylgst með fréttaflutningi af málinu. Vinkonan sagði Ragnhildi hafa sent sér link á frétt þegar málið hefði fyrst komist í kastljós fjölmiðla. Annars hefði hún lítið fylgst með enda búsett erlendis. Hún játti því að hafa vitað af viðtali Stundarinnar við Ragnhildi Eik. Þá vildi Steinbergur fá nánari skýringar á því af hverju vinkonurnar hefðu farið að hlæja í bílnum eftir tímann. „Þetta voru óþægilegar samræður. Við hlógum þótt hún talaði um hvað þetta væri óþægilegt. Þetta var allt mjög kjánalegt.“ Sækjandi spurði vinkonuna svo út í Facebook-samskipti hennar við Ragnhildi Eik eftir seinni tímann þann 5. janúar. Þá hafi Ragnhildur sagst hafa farið aftur til Jóhannesar. Hún hafi spurt: Hvað gerðist? Tveimur dögum síðar hafi svarið borist frá Ragnhildi. „The guy is attracted to my crotch“ sem mætti þýða á íslensku: „Gaurinn er sjúkur í klofið á mér.“ Dagmar Ösp Vésteinsdóttir taldi sig ekki þurfa að spyrja vinkonuna frekar eftir svarið við þessari spurningu. Jóhannes neitar alfarið að hafa snert brjóst eða kynfæri Ragnhildar með óviðeigandi hætti. Hann vildi þó ekki tjá sig um það fyrir dómi á fimmtudag, hvar hann bar vitni í gegnum fjarfundabúnað, og vísaði í vitnisburð sinn hjá lögreglu. Reikna má með dómi í málinu upp úr mánaðamótum.
Mál Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar Dómsmál Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Lýsti upplifun sinni af nuddtímunum í sögulegu þinghaldi Fjöldi vitna var kallaður til við aðalmeðferð í sakamáli á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni í dag og í gær. Jóhannes hefur verið sakfelldur fyrir fjórar nauðganir en aðalmeðferð í fimmta málinu á hendur honum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Jóhannes neitaði sök fyrir dómi en vildi annars lítið tjá sig og vísaði til lögregluskýrslu sem tekin var af honum vegna málsins. Þinghald í málinu var opið, sem er óvenjulegt fyrir kynferðisbrotamál. 14. janúar 2022 11:03 Neitar að hafa snert brjóst eða kynfæri á óviðeigandi hátt Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson segist hvorki hafa komið á óviðeigandi hátt við brjóst eða kynfæri ungrar konu sem sætti meðferð hjá honum á meðferðarstofu hans árið 2012. Hann vildi lítið tjá sig fyrir dómi í morgun um ásakanir sem bornar eru á hann, umfram það sem hann hefur áður tjáð sig í skýrslutöku hjá lögreglu. 13. janúar 2022 10:25 Mest lesið Málið áfall fyrir embættið Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Innlent Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Innlent Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Innlent Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Innlent Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Innlent Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Erlent „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Innlent Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ Innlent Fleiri fréttir Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Vill að þingflokkar vinni saman að því að stytta frí þingmanna Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný Sjá meira
Lýsti upplifun sinni af nuddtímunum í sögulegu þinghaldi Fjöldi vitna var kallaður til við aðalmeðferð í sakamáli á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni í dag og í gær. Jóhannes hefur verið sakfelldur fyrir fjórar nauðganir en aðalmeðferð í fimmta málinu á hendur honum hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Jóhannes neitaði sök fyrir dómi en vildi annars lítið tjá sig og vísaði til lögregluskýrslu sem tekin var af honum vegna málsins. Þinghald í málinu var opið, sem er óvenjulegt fyrir kynferðisbrotamál. 14. janúar 2022 11:03
Neitar að hafa snert brjóst eða kynfæri á óviðeigandi hátt Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson segist hvorki hafa komið á óviðeigandi hátt við brjóst eða kynfæri ungrar konu sem sætti meðferð hjá honum á meðferðarstofu hans árið 2012. Hann vildi lítið tjá sig fyrir dómi í morgun um ásakanir sem bornar eru á hann, umfram það sem hann hefur áður tjáð sig í skýrslutöku hjá lögreglu. 13. janúar 2022 10:25
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent