Lífið

Norð­menn fagna á­tján ára af­mæli Ingi­ríðar prinsessu

Atli Ísleifsson skrifar
Ingiríður Alexandra er dóttir Hákonar krónprins og Mette-Marit prinsessu.
Ingiríður Alexandra er dóttir Hákonar krónprins og Mette-Marit prinsessu. Norska konungsfjölskyldan

Ingiríður Alexandra Noregsprinsessa fagnar átján ára afmæli sínu í dag og hefur dagskrá hennar verið þétt skipuð síðustu daga í tilefni af tímamótunum.

Prinsessan, sem er önnur í röðinni til að erfa norsku krúnuna á eftir Hákoni krónprins, hefur síðustu daga meðal annars heimsótt þinghúsið og fundað með helstu ráðamönnum Noregs, líkt og venjan er með kóngafólk þegar það verður lögráða. Í dag mun hún svo fá að fylgjast með sínum fyrsta ríkisráðsfundi.

Þá hefur hún mætt í sín fyrstu formlegu viðtöl í fjölmiðlum þar sem hún hefur meðal annars verið spurð út í lífið, tilveruna og framtíðina. Segist hún meðal annars hafa hug á að stunda nám erlendis, en áætlanir hennar séu þó ítrekað að breytist. Hún geri sér þó fulla grein fyrir því hvað bíði sín þegar fram í sækir.

Ingiríður Alexandra kom í heiminn 21. janúar 2004 og er hún dóttir Hákons krónprins og Mette-Marit prinsessu.

Norska konungsfjölskyldan hefur birt fjölda nýrra mynda af Ingiríði í tilefni af afmælinu sem og myndband úr skíðaferð fjölskyldunnar þar sem sjá má Ingiríði með foreldrum sínum og Sverri Magnúsi, sextán ára bróður sínum. Má glöggt sjá að Ingiríður er afskaplega lipur skíðakona.

Auk þess að vera góð á skíðum og sparkboxi hefur hún unnið til gullverðlauna í unglingaflokki á Noregsmeistaramótinu í brimbrettaíþróttum.

Líklegt þykir að Ingiríður verði fyrsta drottning Noregs í langan tíma, en síðasta drottning til að ríkja í Noregi var Margrét drottning sem stýrði Danmörku, Noregi og Svíþjóð frá 1387 til 1412.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.