Lífið

Fyrstur á vett­vang þegar tveir hröpuðu í fall­hlíf og náðist allt á mynd­band út af fót­bolta­leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lárus rifjaði upp ógnvænlegt slys í síðasta þætti af Baklandinu.
Lárus rifjaði upp ógnvænlegt slys í síðasta þætti af Baklandinu.

Lárus Petersen, varðstjóri sem hóf störf hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðan 1987, rifjaði upp slys í síðasta þætti af Baklandinu en það átti sér stað á sínum tíma rétt við slökkviliðsstöðina í Skógarhlíðinni.

Tveir einstaklingur hröpuðu þá til jarðar í fallhlíf og náðist slysið á myndband en ástæðan fyrir því var að RÚV var að mynda knattspyrnuleik Vals hinu megin við götuna. Lárus lýsir aðkomunni á þann veg að báðir aðilar hafi verið margbrotnir og aðkoman mjög slæm. Sem betur fer var slökkviliðsstöðin aðeins um 50 metrum frá og voru allir komnir á vettvang á aðeins nokkrum mínútum.

Hér að neðan má hlusta á sögu Lárusar um slysið sem var fjallað mikið um í íslenskum fjölmiðlum á sínum tíma.

Í þáttunum Baklandið er farið yfir allskonar tilfelli en atburðirnir og staðsetningar þeirra kunna að hafa verið breytt vegna þagnarskyldu slökkviliðsins. Daníel Bjarnason er umsjónarmaður þáttanna.

Klippa: Fyrstur á vett­vang þegar tveir hröpuðu í fall­hlíf





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.