Árný samdi lagið þegar hún heimsótti Akureyri í fyrsta sinn síðasta sumar. Hún segir lagið þó ekki fjalla um bæinn sjálfan. Laginu hafi verið gefið þetta nafn tímabundið til þess að greina það frá öðrum lögum. Nafnið hafi hins vegar passað svo vel við lagið að hún ákvað að halda því.
Laginu fylgir einfalt og fallegt tónlistarmyndband sem tekið var upp á Vigdísarvöllum. Í myndbandinu sést Árný ganga í snjónum, alein með gítarinn.
„Við vorum ekkert mikið að mikla þetta fyrir okkur. Við fengum kamerumann og keyrðum af stað rétt fyrir gula viðvörun. Við eltum svo veðrið og náttúruna og létum það allt leiða okkur svolítið áfram, nýttum það sem við höfðum. En þetta kom bara vel út, þó að það hafi verið mjög kalt!“ segir Árný.
Lagið Akureyri er annað lag Árnýjar Margrétar en hún gaf út lagið Interwined á síðasta ári. Von er á enn fleiri lögum frá Árnýju á næstunni.
„Ég er að fara gefa út annað lag, það er á íslensku og kemur út í byrjun febrúar. Svo er að koma út EP plata núna í lok febrúar sem er mjög spennandi.“
Sjá einnig: Eitt best geymda leyndarmál íslenskrar tónlistar fannst á Ísafirði
Árný sagði frá því í viðtali síðasta haust að fram til ársins 2019 hafi hún að mestu leyti spilað tónlist ein inni í herberginu sínu. Það var svo þegar hún komst í samband við Högna Egilsson tónlistarmann og hann notaði lag eftir hana í myndinni Þriðji póllinn, sem boltinn fór að rúlla.
Nýverið skrifaði hún svo undir samning við bandarísku bókunarskrifstofuna Higher Roads Touring. Hún segist hafa góða tilfinningu fyrir samstarfinu en hún reynir að halda sér niðri á jörðinni og stressa sig sem minnst.
„Ég finn að þetta er fólk sem er með mér í liði og vill að allt gangi vel, sem er ótrúlega gott að hafa í þessum bransa. Phoebe Bridgers er líka hjá þeim sem er alveg ruglað, hef hlustað á hana lengi.“