Umfjöllun: Danmörk - Frakkland 29-30 | Takk fyrir ekkert Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. janúar 2022 21:45 Danir lögðu árar í bát undir lok leiks og köstuðu frá sér sigrinum. Sanjin Strukic/Getty Images Danmörk leiddi nær allan leikinn gegn Frakklandi til þess eins að tapa með eins marks mun og kosta Ísland þar með sæti í undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta. Takk fyrir ekkert Danmörk. Spennan var mikil fyrir leik, þá kannski helst hjá íslensku þjóðinni enda þurfti Ísland að treysta á danskan sigur til að komast í undanúrslit. Leikurinn gat því vart farið betur af stað en Danir réðu lögum og lofum í upphafi leiks. Danmörk komst 3-0 yfir og var með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Franska vörnin var hripleg og opnaðist hægri vængur hennar trekk í trekk. Það var hreint ótrúlegt að horfa upp á dauðafærin sem Niclas Kirkeløkke fékk og þakkaði hann pent fyrir sig með hverju markinu á fætur öðru framan af leik. Jacob Holm fékk ekki jafn góð færi en það virtist engu máli skipta hversu vel eða illa hann grýtti boltanum í átt að marki, allt endaði í netinu. Frustration for @FRAHandball against the combined efforts of @dhf_haandbold's Niclas Kirkeløkke and Jacob Holm #ehfeuro2022 #watchgamesseemore pic.twitter.com/I9j1EkS9cr— EHF EURO (@EHFEURO) January 26, 2022 Þá var danska vörnin hreint út sagt frábær framan af leik og þar á bakvið var Kevin Möller í fantaformi. Hann skuldaði okkur Íslendingum það eftir að draga Niklas Landin að landi í leik liðanna nýverið. Þó Danir hafi klúðrað því að ná skoti í síðustu sókn fyrri hálfleiks var munurinn samt sem áður fimm mörk er flautað var til hálfleiks, staðan 15-10 Dönum í vil. Við Íslendingar höfum þó brennt okkur á því nú þegar á þessu móti að klára einfaldlega ekki mikilvæga leiki í fyrri hálfleik. Kevin Möller gerði sitt besta í kvöld. Það sama verður ekki sagt um alla leikmenn danska liðsins.Sanjin Strukic/Getty Images Þá er aldrei hægt að treysta Dönum fyrir einu né neinu, höfundur ætti að vita það enda búsettur í Kaupmannahöfn. Síðari hálfleikur var stútfullur af slæmum og vafasömum ákvörðunum danska liðsins. Sú fyrsta var að taka sjóðheitan Möller af velli og setja Niklas Landin í markið. Sá síðarnefndi vissulega með betri markvörðum í heimi og mögulega sýndi hann það í tvígang, en ákvörðunin ein og sér var samt skrítin. Wowowow @Niklas_Landin @dhf_haandbold #ehfeuro2022 #watchgamesseemore pic.twitter.com/lm52hNJlpw— EHF EURO (@EHFEURO) January 26, 2022 Annars var síðari hálfleikurinn framan af líkt og sá fyrri. Danmörk hélt sinni þriggja til fimm marka forystu og virtust ætla að sigla sigrinum í hús – og þar með tryggja Íslendingum farseðilinn í undanúrslitin. Þegar tíu mínútur lifðu leiks fór danska sóknin að hiksta og upp úr þurru fór Vincent Gerard að verja í marki Frakklands. Hann varð tvívegis frá Rene Antonsen úr algjörum dauðafærum. Færin voru það góð að téðum Rene verður snúið á Leifsstöð ef hann dirfist að sýna andlit sér hér á landi á næstu árum (eða áratugum). Allt í einu var þriggja til fimm marka forysta orðin að tveggja marka forystu. Svo eins marks forystu, það mark endanlega sneri leiknum en Dika Mem negldi þá í hávörnina og boltinn lak inn eftir að Landin var sestur. It's @DikaMem!@FRAHandball #ehfeuro2022 #watchgamesseemore pic.twitter.com/9luVprYhAc— EHF EURO (@EHFEURO) January 26, 2022 Eftir að áðurnefndur Rene hafði klúðrað einu af færum mótsins jafnaði Hugo Descat svo metin. Á meðan samherjar hans voru með buxurnar á hælunum og hjartað í buxunum var Descat yfirvegunin uppmálið á vítalínunni en vítaskot hans héldu Frakklandi inn í leiknum. Á ögurstundu var það svo Mem sem stökk upp og lúðraði boltanum í netið, tvívegis, er Frakkar unnu ótrúlegan eins marks sigur. Lokatölur 30-29 Frakklandi í vil sem vinnur þar með milliriðilinn. And so the #ehfeuro2022 main round ends. We'll see @FRAHandball , @dhf_haandbold & @HSI_Iceland again in the #ehfeuro2022 final weekend! pic.twitter.com/IWbH7ZCBSC— EHF EURO (@EHFEURO) January 26, 2022 Ísland mætir Norðmönnum í leik um fimmta sæti mótsins á föstudaginn. Til mikils er að vinna í þeim leik en fimmta sætið gefur öruggt sæti á HM í handbolta sem haldið verður í Svíþjóð og Póllandi á næsta ári. Handbolti EM karla í handbolta 2022