Erlent

Brú hrundi skömmu fyrir heim­sókn Banda­ríkja­for­seta

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Mjóu mátti muna þegar brúin hrundi.
Mjóu mátti muna þegar brúin hrundi. AP Photo/Gene J. Puskar

Tíu eru slasaðir eftir að brú hrundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í dag. Enginn er talinn vera í lífshættu.

Málið hefur vakið sérstaka athygli þar ytra en brúin hrundi aðeins nokkrum klukkutímum fyrir fyrirhugaða heimsókn Joe Biden Bandaríkjaforseta til borgarinnar.

Biden hugðist ræða innviði og uppbyggingu sérstaklega í opinberri heimsókn sinni í Pittsburgh. AP fréttaveitan greindi frá.

Í nýjum innviðalögum forsetans eru ríflega 1,6 billjón bandaríkjadollarar eyrnamerktir lagfæringum á brúm í Pennsylvaníu og hefur tilviljunin því þótt helst til óheppileg.

Yfirvöld í borginni þakka þó fyrir að enginn hafi slasast alvarlega en fimm bílar og rúta voru á brúnni þegar hún hrundi. Ekki er vitað hvað olli því að brúin hrundi að svo stöddu.

Joe Biden Bandaríkjaforseti á vettvangi slyssins.AP Photo/Andrew Harnik



Fleiri fréttir

Sjá meira


×