Sólveig Anna sagði af sér í október síðastliðnum í kjölfar þess að starfsfólk Eflingar lýsti yfir vantrausti á hana. Málið var mikið deiluefni innan félagsins.
Ragnar segir Sólveigu Önnu hafa lyft grettistaki í verkalýðsbaráttu láglaunafólks. Hún hafi breytt andlausu félagi til margra ára í það afl sem því hafi ætlað að vera.
„Við Solla erum oft sammála en ekki alltaf. Við erum/vorum formenn í ólíkum félögum þar sem vilji félagsmanna og kröfugerðir fara ekki alltaf saman. Samt hefur okkur tekist að vinna mikilvægum framfararmálum brautargengi og ég fullyrði að ef ekki hefði verið fyrir þá samvinnu hefðu bæði félögin gengið frá borði með lakari samning í síðustu kjarasamningum.“
Hann segist styðja Sólveigu Önnu heilshugar í framboðinu.
„Ég fagna framboði Sólveigar og hennar flotta og kraftmikla fólki.“