Aldrei fór ég suður fer fram í ár Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 29. janúar 2022 11:29 Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hefur verið sett á dagskrá um páskahelgina. Vísir Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, sem haldin er um páskana á Ísafirði, verður haldin þetta árið. Hátíðinni hefur verið slegið af síðustu tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins.
Þetta kom fram í Morgunkaffinu á Rás 2 í morgun og Instagramsíða Aldrei fór ég suður deilir í hringrás sinni á Instagram. „Undir styrkri stjórn Mugisons og þessum hópi, við erum búin að koma saman á fjarfundum á öllum dögum janúarmánaðar. Í gær var tekin sú ákvörðun að við ætlum bara að endurræsa vélina, ýta á reset takkann og á fulla ferð. Aldrei fór ég suður verður haldin með elegans,“ sagði Kristján Freyr Halldórsson, einn skipuleggjenda Aldrei fór ég suður í þættinum. Hátíðin er um páskana, sem eru 15. til 17. apríl þetta árið. Kristján greindi jafnframt frá því að Mugison, tónlistarmaður og rokkstjóri hátíðarinnar, er að taka upp nýja plötu sem landsmenn geta beðið spenntir eftir. Tilkynnt var í gær að stefnt sé að því að aflétta öllum sóttvarnaaðgerðum innanlands um miðjan mars og verður því vonandi hægt að mæta vestur á Ísafjörð mánuði seinna til að njóta rokkhátíðarinnar góðu.
Ísafjarðarbær Tónlist Aldrei fór ég suður Mest lesið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Leysir frá brandaraskjóðunni Lífið Simmi Vill spilaði Skítakall við nýju kærustuna Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Júlía Margrét gengin út Lífið Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira