Lífið

Shia LaBeouf og Mia Goth eiga von á barni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Parið saman árið 2014.
Parið saman árið 2014. Fred Duval/FilmMagic/Getty

Bandaríski leikarinn Shia LaBeouf og enska leikkonan Mia Goth eiga von á sínu fyrsta barni saman.

People greinir frá þessu. LaBeouf og Goth gengu í það heilaga árið 2016, en skildu árið 2018. Parið hefur hins vegar hætt saman og byrjað aftur saman nokkrum sinnum frá því þau kynntust árið 2012.

Orðrómar þess efnis að þau væru farin að vera saman á ný komust á kreik í apríl 2020 þegar LaBeouf sást á gangi með giftingarhring, um svipað leyti og Goth sást með demants- og giftingarhringa á sér.

Þá sást til parsins saman í Disneylandi í júní árið 2021. Parið kynntist við tökur á kvikmyndinni Nymphomaniac: Vol. II eftir Lars von Trier. Goth er 28 ára en LaBeouf er 35.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×