Lífið

Jack Whitehall skoðar Hallgrímskirkju

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Parið nýtur þess að skoða landið.
Parið nýtur þess að skoða landið. Getty/ Dave J Hogan

Leikarinn og grínistinn Jack Whitehall er staddur á Íslandi ásamt kærustu sinni, fyrirsætunni Roxy Hornes. Hann virðist njóta þess að prófa sig áfram með leiðir til að nota buff og skoða náttúruna.

Jack er líklega þekktastur fyrir þættina Travels With My Father, Fresh Meat og Bad Education. Roxy er fyrirsæta ásamt því að vera með fjölmarga fylgjendur á samfélagsmiðlum.

Parið virðist hafa notið sín vel í Bláa Lóninu með drykk við hönd og súkkulaði húðuð jarðaber. Samfélagsmiðlar hans gefa til kynna að þau séu búin að vera mikið að ferðast í mánuðinum og það er óljóst hversu lengi þau verða á landinu. 

Buff töffari.Skjáskot/Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.