Viðskipti innlent

For­stjóri Skeljungs hættir ó­vænt vegna upp­­lifunar sam­­starfs­­konu

Árni Sæberg skrifar
Árni Pétur Jónsson er fráfarandi forstjóri Skeljungs hf. 
Árni Pétur Jónsson er fráfarandi forstjóri Skeljungs hf.  Skeljungur hf.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri. Hann vísar til þess að honum hafi borist tölvupóstur frá fyrrverandi samstarfskonu sem segir hann hafa farið yfir mörk í samskiptum þeirra fyrir sautján árum.

Í tilkynningu sem almannatengill sendi fjölmiðlum rétt í þessu fyrir hönd Árna Péturs, segir að fyrrverandi samstarfskonan hafi tjáð Árna Pétri í tölvupósti á dögunum að hún upplifi samskipti milli þeirra, á þeim tíma sem hann var yfirmaður hennar, sem óviðeigandi.

Þar segir að það hafi verið fyrir sautján árum þegar Árni Pétur var yfirmaður konunnar hjá öðru fyrirtæki.

Viðmið og viðhorf hafi breyst

„Hún hefur tjáð mér að ekki sé verið að saka mig um ofbeldi, áreiti, brot gegn lögum eða neitt þess háttar heldur hafi verið um að ræða valdaójafnvægi og aldursmun,“ segir í tilkynningunni.

Árni Pétur segist hafa beðið konuna afsökunar og að hann harmi mjög að heyra um hennar vanlíðan.

„Þrátt fyrir að ég hafi á engan hátt gerst brotlegur við lög þá átta ég mig á því að viðmið og viðhorf hafi breyst í samfélaginu og er það vel. Met ég stöðuna þannig að mál þetta kunni að valda fyrirtækinu og samstarfsfólki óþægindum. Ég hef því óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri hjá Skeljungi hf.,“ segir Árni Pétur.

Ólafur Þór tekur við

Skeljungur hf. hefur staðfest að Árni Pétur hafi látið af störfum sem forstjóri félagsins sem og framkvæmdastjóri dótturfélagsins Orkunnar ehf. Þetta segir í tilkynningu félagsins.

Ólafur Þór Jóhannesson, sem gengt hefur starfi aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs hefur verið ráðinn sem forstjóri Skeljungs hf. Hann mun einnig gegna starfi framkvæmdastjóra Orkunnar ehf. fyrst um sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×