Innlent

Eldur kviknaði í íbúð í Furugerði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Traustir lesendur Vísis sendu fréttastofu þessa mynd af vettvangi nú um tvöleytið.
Traustir lesendur Vísis sendu fréttastofu þessa mynd af vettvangi nú um tvöleytið. Aðsend

Fjölmennt lið slökkviliðs var sent á vettvang við Furugerði 1 í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt eftir að eldur kviknaði í íbúð. Um er að ræða níu hæða fjölbýlishús.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sluppu allir út úr íbúðinni svo ekki urðu slys á fólki. Eitthvað tjón er þó á íbúðinni sjálfri.

Allir fjórir dælubílar slökkviliðsins voru sendir á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×