Innlent

Boðaði vetrar­ríki þegar veðrið snar­versnaði í beinni

Snorri Másson og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að von sé á snjókomu um land allt á næstu dögum.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að von sé á snjókomu um land allt á næstu dögum. Stöð 2

Ekkert lát er á vonskuveðri en gular viðvaranir tóku gildi á suðvestur og vesturhorni landsins fyrr í dag. Veðurfræðingur boðar vetrarríki og segir ráðlegt að hafa snjóskófluna reiðubúna til taks næstu daga.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að landsmenn muni finna vel fyrir lægðinni næsta sólarhringin. Rauð viðvörun var í gildi á höfuðborgarsvæðinu í gær og nú taki gul við.  Hann segir að veðrið verði þó líklega ekki verra en það var í gærnótt og í morgun.

Einar segir að vindáttin hafi breyst töluvert síðan í gærkvöldi og nú sé von á suðvestanátt. Veðurfræðingar gera ráð fyrir því að veðrið verði áfram nokkuð slæmt fram eftir nóttu. 

„Það eru nokkur atriði sem þarf að hafa í huga: Þessu fylgir hríðarbakki og það verður staðbundin ófærð. Það er selta sem fylgir þessu og það gæti valdið truflunum á raforkukerfinu hérna suðvestanlands. Og svo í þriðja lagi þá er ansi mikil ölduhæð úti fyrir Reykjanesi,“ segir Einar. 

Hann bætir við að ölduhæð hafi náð þrettán metrum á Garðskagadufli fyrr í kvöld sem sé töluvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Hellisheiðin sé enn lokuð og gera megi ráð fyrir frekari lokunum á vegum.

Verður snjórinn til trafala á næstu viku?

„Langtímaveðurútlitið næstu vikuna og rúmlega það býður bara upp á það að það bæti í snjóinn eiginlega um mestallt land. Það gerist ekki jafnt og þétt heldur hægt og rólega en það er vetrarríki hér næstu vikuna og jafnvel lengur,“ segir Einar.

Þurfum við að vera dugleg að moka?

„Alla vega hita vel upp snjóskófluna, það getur vel verið að hennar verði þörf á næstu dögum og vikum,“ segir Einar Jónsson veðurfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×