Lífið

David­son kallar Kardashian kærustu sína í per­sónu­legu við­tali úr svefn­her­berginu

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Pete Davidson var í sínu fyrsta viðtali eftir að hann og Kim Kardashian fóru að sjást saman síðasta haust.
Pete Davidson var í sínu fyrsta viðtali eftir að hann og Kim Kardashian fóru að sjást saman síðasta haust. People

Grínistinn Pete Davidson var í sínu fyrsta viðtali eftir að hann og stórstjarnan Kim Kardashian fóru að sjást saman opinberlega síðasta haust. Í viðtalinu segist hann eyða miklum tíma með „kærustu sinni“ og er það í fyrsta sinn sem annað þeirra staðfestir að um raunverulegt ástarsamband sé að ræða.

Viðtalið við Davidson birtist í gær í sérstökum vefþætti tímaritsins People. Viðtalið var í heldur óhefðbundnu sniði en Davidson var staddur í svefnherbergi sínu og spjallaði við blaðakonu People í gegnum fjarskiptabúnað.

Í svefnherberginu mátti meðal annars sjá bangsa á rúminu hans og kerti með mynd af sjálfri Kim Kardashian. Hann afsakaði þó ástandið á herberginu og sagðist vera að standa í flutningum.

Er ekki á samfélagsmiðlum

Í viðtalinu var hann spurður hvaða áhrif þessi skyndilega frægð hefði haft á líf hans.

„Ég er ekki á Instagram eða Twitter, þannig ég eyði mestum tíma í að fara inn í og út úr bíl og koma mér í tökur. Ef ég er í fríi þá er ég oftast með vinum mínum eða kærustunni minni innandyra,“ segir Davidson og staðfesti með þessu að hann og Kardashian væru nú formlega par.

Sambandið hefur verið umtalað síðan þau fóru að sjást saman opinberlega síðasta haust. Sumir vildu þó meina að sambandið væri sett upp fyrir athyglina og jafnvel að þetta væri bara ein stór auglýsing fyrir SKIMS, fatamerki Kardashian.

Sjá einnig: Yeezy-klædd Kim Kar­dashian leiðir nýja kærastann

„Þetta hefur ekki mikil áhrif á lífið mitt. Stundum gerist það að fólk öskrar eitthvað á mig og það er kannski erfitt fyrir mig að ætla að skjótast á Dunkin Donuts. En fyrir utan það, þá er þetta ekkert hræðilegt. Þetta gæti verið mun verra.“

Heldur Valentínusardaginn hátíðlegan í fyrsta sinn

Þegar blaðakonan minnir Davidson á það að Valentínusardagurinn sé á næsta leyti, segist hann aldrei hafa haldið upp á þann dag áður.

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég er farinn að huga að einhverjum áformum fyrir Valentínusardaginn,“ segir Davidson.

Honum er því greinilega alvara með sambandi sínu við Kardashian, því þetta er alls ekki hans fyrsta samband. Hann var meðal annars trúlofaður söngkonunni Ariönu Grande.


Tengdar fréttir

Sagður dreifa svæsnum lygum um David­son

Tónlistarmaðurinn Kanye West er sagður hafa borið út þann róg að Pete Davidson sé með alnæmi. Eins og frægt er, þá er Davidson kærasti barnsmóður West, Kim Kardashian, en West ekki talinn vera par sáttur við það samband.

Kim og Pete njóta lífsins á Bahamas

Kim Kardashiann og Pete Davidson voru mynduð saman á Bahamas eyjum í gær. Parið var mætt þangað í frí og vöktu auðvitað mikla athygli alls staðar sem þau fóru.

Segir sam­band Kim Kar­dashian og Pete David­son loksins opin­bert

„Þetta er orðið opinbert. Ég er búin að vera lengi að sætta mig við þetta, en þetta er bara svona. Þau eru saman,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir um sambandið sem allra augu hafa verið á síðustu mánuði, þeirra Kim Kardashian og Pete Davidson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.