„Það kom sem sagt hugmynd frá Skarpa og Pálma þegar þeir voru að vinna fyrir Stöð 2, hvort við í Vesturport gætum gert svona Himmelblå seríu sem var norsk sería sem var sýnd á RÚV. Svona drama um líf fólks í þorpi. Við héldum það nú og eitt leiddi að öðru og við hóuðum í gott teymi af fólki og byrjuðum að fabúlera hvað við ætluðum að skrifa um. Á endanum var þetta niðurstaðan og við áttuðum okkur á því að við vissum voðalega lítið um kvótakerfið og fiskinn okkar.“ segir Nína Dögg.
Reyndist áskorun að finna bíla
Þættirnir hafa fengið vægast sagt góð viðbrögð og ljóst að áhorfendum finnst gaman að sjá aftur til fortíðar, en þættirnir gerast á árunum 1983-1991.
„Það er svo mikil heimildarvinna sem liggur að baki. Þetta er eins og að fara ofan í flotvörpu. Þetta er hafsjór af upplýsingum. Þetta er eins og dómínó, ef þú breytir einhverju í fyrsta þætti þá hefur það áhrif á alla þættina. Það var dálítið mikið um svoleiðis breytingar,“ segir Gísli Örn.
Þar sem þættirnir eiga að gerast á níunda áratugnum, segja þau það hafa reynst snúið að redda leikmunum og þá helst bifreiðum.
„Að finna einhvern fjörutíu ára gamlan bíl sem lítur ekki út fyrir að vera fjörutíu ára gamall og koma honum svo á Suðureyri í janúar og keyra hann um göturnar, með eiganda sem er rosalega stressaður því þetta er djásnið hans. Það er til svolítið af amerískum bílum, en við vildum ekki nota mikið af þeim. Því menn voru bara á Mözdu, Toyota, Lödu og Volvo. Þannig það er mikið vesen að ná þessu öllu.“ segir Gísli.
Senurnar í Hull teknar upp í Liverpool
Þættirnir voru að mestu leyti teknir upp á Suðureyri og í Bolungarvík. Ákveðnar senur í þáttunum eiga að gerast í hafnarborginni Hull í Englandi, en þær voru þó teknar upp í Liverpool.
„Við ætluðum að taka í Hull en talandi um niðurnídda staði. Hull er eins og Hull var fyrir fjörutíu árum, en það er ekkert búið að gera,“ segir Gísli.
Það var því brugðið á það ráð að taka upp í Liverpool, en íbúar þar voru ekki eins liðlegir og íbúarnir á Vestfjörðum.
„Þegar maður ætlaði að reyna loka einhverri götu svona rétt á meðan það var verið að taka eitthvað upp, þá var til dæmis leigubílstjóri sem ætlaði að reyna keyra okkur niður og kom svo út úr bílnum og ætlaði að lemja okkur,“ segir Gísli og Nína bætir því við að:
„Íslenskt crew lendir í alls konar aðstæðum og kringumstæðum, enda held ég að íslenskt crew sé eitt af því besta í heimi.“
Lokaþáttur Verbúðarinnar verður sýndur á sunnudaginn og bíða landsmenn spenntir.
„Hún klárast þessi sería...“ segir Gulli Helga, umsjónarmaður í Bítinu. „Og svo kemur eitthvað,“ segir Gísli Örn þá en gefur lítið upp.
Hér að neðan má hlusta á viðtalið við þau Gísla Örn og Nínu Dögg í heild sinni.