Fótbolti

Fyrrverandi leikmaður United gapandi hissa þegar Messi bað um treyjuna hans

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Angel Gomes í leik Lille og Paris Saint Germain á sunnudaginn.
Angel Gomes í leik Lille og Paris Saint Germain á sunnudaginn. getty/Rico Brouwer

Angel Gomes var steinhissa þegar sjálfur Lionel Messi bað um treyjuna hans eftir leik Lille og Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni um helgina.

Leikurinn var ekki eftirminnilegur fyrir Gomes enda tapaði Lille honum með fimm mörkum gegn einu. Hann mun samt sennilega ekki gleyma því sem gerðist eftir leikinn í bráð.

Messi skoraði í leiknum, aðeins annað deildarmarkið sitt fyrir PSG. Í leikmannagöngunum eftir leikinn gekk argentínski snillingurinn að Gomes og bað um að skiptast á treyjum við hann.

Gomes var greinilega hissa á beiðninni en sagði að sjálfsögðu ekki nei við Messi. Eftir að hafa skipst á treyjum féllust þeir í faðma.

Lille fékk Gomes frá Manchester United fyrir tveimur árum. Á síðasta tímabili lék hann sem lánsmaður með Boavista í Portúgal og stóð sig vel.

Lille kallaði Gomes svo til baka fyrir þetta tímabil. Í vetur hefur hann leikið átján leiki í öllum keppnum og skorað tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×