Meistararnir styrktu stöðu sína á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Riyad Mahrez skoraði fyrra mark City af vítapunktinum í kvöld.
Riyad Mahrez skoraði fyrra mark City af vítapunktinum í kvöld. Gareth Copley/Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City eru nú með tólf stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur gegn nýliðum Brentford í kvöld.

Heimamenn í City voru lengi að brjóta vörn nýliðanna á bak aftur, en það tókst loksins rétt rúmum fimm mínútum fyrir hálfleik þegar Mads Roerslev braut á Raheem Sterling innan vítateigs. Riyad Mahrez fór á punktinn fyrir City og skoraði af miklu öryggi.

Staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks, en Kevin de Bruyne tvöfaldaði forystu heimamanna með marki á 69. mínútu. Belginn var þá fyrstu að átta sig eftir að David Raya hafði varið vel frá Raheem Sterling og eftirleikurinn var auðveldur.

Þetta reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan varð því 2-0 sigur Englandsmeistaranna. City er nú með tólf stiga forskot á Liverpool á toppi deildarinnar, en þeir síðarnefndu eiga þó tvo leiki til góða.

Brentford situr hins vegar í 14. sæti deildarinnar með 23 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira