Körfubolti

Fasið breyttist í flugstöðinni og fólk tók andköf yfir Jóni Arnóri

Sindri Sverrisson skrifar
Jón Arnór Stefánsson var besti maður mótsins á Scania Cup árið 1996.
Jón Arnór Stefánsson var besti maður mótsins á Scania Cup árið 1996. Stöð 2

Það var snemma ljóst í hvað stefndi hjá körfuboltamanninum Jóni Arnóri Stefánssyni sem fékk viðstadda til að taka andköf með tilþrifum sínum þegar KR vann Scania Cup árið 1996.

Jón Arnór var valinn „Scania-kóngurinn“ á þessu norræna félagsliðamóti yngri flokka í Svíþjóð, og leiddi KR til sigurs í flokki 14 ára og yngri.

„Eðlilega ættu Svíþjóð og Danmörk og fleiri að vera með einhver lið sem væru betri en við. En svo sá maður það eftir fyrstu leikina að við vorum bara betri en þeir, og Jón var bara yfirburðamaður í þessum árgangi,“ segir Helgi Már Magnússon liðsfélagi Jóns hjá KR.

„Ég hef hitt menn þegar ég var að spila í Svíþjóð, gamla þjálfara og fleiri, sem muna eftir þessu. Að hafa kíkt inn í salinn og séð að það var augljóst að „Stefánsson“ væri að fara eitthvert.“

Um þetta er fjallað í fyrsta þætti nýrrar seríu um Jón Arnór sem sýnd er á miðlum Stöðvar 2. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: Jón Arnór - Stækkaði á Scania Cup

Lélegastur á móti auðveldum mótherjum en „stækkaði“ við áskoranir

„Hann eflist bara við þá áskorun sem sett er á hann,“ segir þjálfarinn Ingi Þór Steinþórsson. „Ef að hann var að fara að spila við lið sem hann hafði unnið með 50 stigum tvisvar í röð, þá var hann lélegasti maður liðsins. Þá fékk hann bara ekki það „drive“ sem hann þurfti. Þegar hann fór á Scania Cup þá stækkaði hann og breikkaði, og fasið breyttist í [flugstöð] Leifs Eiríks,“ sagði Ingi.

„Þetta var svona í fyrsta skipti sem að við sem lið vorum að máta okkur við bestu liðin á Norðurlöndum og hann þá við bestu leikmennina á Norðurlöndum, og ég myndi segja að hann hafi gert það með bravör enda var hann valinn besti maður mótsins og leiddi okkur til sigurs,“ sagði Benedikt Guðmundsson sem þjálfaði þá KR.

„Ég man eftir einu „vá-mómenti“ þar sem hann tók knattraksæfingar í hraðaupphlaupi, eitthvað „spin“… Það var ekki bara ég sem hugsaði „vá“, það heyrðust andköf í stúkunni,“ sagði Benedikt.

Jón Arnór er sex þátta sería og var fyrsti þáttur frumsýndur í gær. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum á Stöð 2 Sport kl. 20, á fimmtudögum kl. 19:10 á Stöð 2 og einnig aðgengilegir á Stöð 2 +.


Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×