Dóra Jóhannsdóttir leikkona birti fallegar brúðkaupsmyndir á samfélagsmiðlum. Hún giftist unnusta sínum Agli Egilssyni flugmanni þann 12. febrúar.
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson fagnaði konunum í sínu lífi.
Fanney Dóra hélt auðvitað upp á konudaginn og birti fallega mæðgnamynd.
Crossfit Open er að hefjast og Annie Mist tók hvíldardag um helgina.
Vinkonurnar Sunneva Einars og Jóhanna Helga voru duglegar að birta myndir frá Kúbu en þær tóku báðar kærastana með í ferðina.
Söngkonan Þórunn Antonía skemmti hópnum á Kúbu ásamt Dóru Júlíu, plötusnúð og blaðamanni hér á Vísi.
Bassi Maraj er hógvær eins og alltaf. Hann sólbrann illa á Kúbu en lét það ekki stoppa sig.
Binna Glee leiddist svo sannarlega ekki í Havana.
Patrekur Jaime var gestur vikunnar í Snyrtiborðinu hér á Vísi en hann var að baða sig í sólinni á Kúbu þegar þátturinn fór í loftið.
DJ Margeir og Högni Egilsson voru ekki bara að spila tónlist á Kúbu, heldur spiluðu þeir líka tennis.
Rúrik Gíslason settist í dómarasætið í Lets Dance á föstudag þegar einn dómarinn greindist óvænt með Covid. Rúrik er ekki atvinnudansari en vann keppnina á síðasta ári.
Bríet birti fallega paramynd.
Kaleo komu fram á Soho House í Nashville.
Eva Ruza tilkynnti stór tímamót en hún hefur í meira en 20 ár staðið vaktina í blómaversluninni Ísblóm ásamt móður sinni. Nú eru þær að afhenda öðrum lyklana.
Sýningar á Níu líf eru farnar aftur af stað í Borgarleikhúsinu.
Það var skíðastemning á Petersen svítunni um helgina og sumir tóku þemað alla leið.
Elísabet Gunnars átti æðislegan fjölskyldudag á Suðurlandi.
Birgitta Haukdal mætti óvart viku of snemma í afmæli.
Fasteignasalinn Hlynur fór úr að ofan fyrir myndatöku á Kýpur.
Lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skemmti sér vel á skíðum með Önnu Maríu Þorsteinsdóttur í Frakklandi.
Sóli Hólm er kominn aftur í iðnaðargallann. Hann festi nýlega kaup á húsi með Viktoríu Hermannsdóttur. Þau stefna á að flytja á næstu mánuðum.
Andrea Magnúsdóttir fagnaði mönnunum í sínu lífi, en bæði eiginmaðurinn og sonurinn eiga afmæli í dag.
Helgi Ómarsson ljósmyndari birti nokkrar vel valdar myndir frá helginni.
Dansarinn Ástrós Trausta fór út á Lífið í London.
Jón Daði skoraði sitt fyrsta mark fyrir nýja liðið sitt.
Þjálfarinn Ásdís Inga átti gott vinkonukvöld.
Víkingur Ólafsson og Daníel Bjarnason skáluðu fyrir frumflutningi á nýju verki eftir Daníel í Walt Disney-tónleikahöllinni í Los Angeles.
Pattra og fjölskylda greindust með Covid, en hún á von á barni á næstu dögum.
BlazRoca gaf út nýtt lag ásamt Agli Ólafs.