„Þetta er auðvitað bara mikið fagnaðarefni og það sem við vildum. Allir í húsunum hérna í götunni eru búnir að vera læstir inni með sínar eignir. Það hefur enginn viljað fara í endurbætur eða framkvæmdir á húsunum af ótta við að þau yrðu svo bara færð í burtu eða rifin,“ segir Magnús Reyr Agnarsson, einn íbúa við veginn.
Heimildin olli misskilningi
Fjallað var um það í kvöldfréttum Stöðvar 2 á sínum tíma hve ósáttir íbúar væru við bæinn í málinu en á nýju deiliskipulagi sem er í umsóknarferli var upprunalega veitt heimild til að fjarlægja þessi 19 hús við vesturhlið Reykjavíkurvegar til að rýmka til fyrir borgarlínu, sem á að liggja um veginn.
Nú hefur þessi heimild hins vegar verið tekin út úr deiliskipulaginu.
„Þetta var farið að valda ákveðnum misskilningi þannig við tókum þessa heimild út úr skipulaginu,“ segir Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar í samtali við Vísi.
Hann segir að aldrei hafi staðið til að fjarlægja húsin.
„Það er alveg vitað að það gerist ekkert nema íbúarnir séu með í því. Það komu athugasemdir frá þeim um þetta atriði, þær voru teknar fyrir í bæjarstjórn og samþykkt að taka þetta út. Það hefur núna verið tekið tillit til langflestra athugasemdanna við þetta skipulag,“ segir Ólafur Ingi.
Verða vernduð fyrir framtíðar bæjarstjórnum
Þá stendur einnig til að stækka fyrirhugað verndarsvæði í hverfinu, sem kallast gamli Vesturbærinn, þannig að umrædd hús verði innan þess. Íbúarnir höfðu einmitt gagnrýnt það að húsin sem stæðu næst Reykjavíkurvegi næðu ekki inn á nefndarsviðið.
Ólafur Ingi segir að allir í skipulags- og byggingarráði séu sammála um að stækka verndarsvæðið svo það nái yfir húsin, en það hefur ekki verið samþykkt enn.
„Við erum sammála um það í nefndinni, já, og það verður samþykkt bráðlega,“ segir hann.
Á myndinni hér að ofan má sjá Vesturbæ Hafnarfjarðar. Verndarsvæðið eins og það var teiknað upp fyrst er daufblátt á myndinni. Rauða línan sýnir hvar verndarsvæðið átti að taka enda í austurátt en bláa línan sýnir Reykjavíkurveginn. Þau hús sem lentu þarna á milli línanna átti því að vera hægt að fjarlægja í framtíðinni. Samkvæmt Ólafi Inga verður verndarlínan færð alveg upp að Reykjavíkurvegi svo húsin falli undir svæðið.
Því fagnar íbúinn Magnús Reyr.
„Það er mikilvægt að húsin séu á þessu verndarsvæði svo þau væru þá ekki að bjóða framtíðarbæjarstjórnum upp á það að þær gætu farið inn og tekið þessi hús. Það er ekki hægt þegar þau eru komin inn á verndarsvæðið,“ segir hann.
Verndarsvæðið verður líklega að raunveruleika á fyrri hluta þessa árs en það er ekki á valdi Hafnarfjarðarbæjar eins að koma því á heldur þurfa nú ráðuneyti og Skipulagsstofnun að samþykkja það.