Handbolti

Arnar Freyr sá rautt í jafntefli

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Elvar Örn Jónsson.
Elvar Örn Jónsson. vísir/getty

Íslendingalið Melsungen var í eldlínunni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld þegar liðið fékk Leipzig í heimsókn.

Elvar Örn Jónsson, Alexander Petterson og Arnar Freyr Arnarsson eru allir á mála hjá Melsungen en tóku mismikinn þátt í leiknum sem lyktaði með jafntefli, 22-22.

Elvar Örn var eini Íslendingurinn sem komst á blað í markaskorun en hann gerði tvö mörk úr fimm skotum.

Arnar Freyr stóð vaktina í vörn Melsungen og tók þar ansi hressilega til hendinni því hann fékk þrisvar sinnum tveggja mínútna refsingu og þar með rautt spjald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×