Síðan snemma í febrúar hefur hver lægðin á fætur annarri gengið yfir landið en þeim hefur fylgt aftakaveður og mikil úrkoma. Götur hafa fylgst af snjó og klaka og hafa borgarstarfsmenn vart haft undan við að moka til að halda götunum færum.
![](https://www.visir.is/i/40BE27884F900015E07FA88B9EB3205884AA1933B30480084F821C4561AE6BCE_713x0.jpg)
„Þetta er bara búið að vera skelfileg tíð. Umhleypingar eins og við Íslendingar þekkjum þetta. Það hefur snjóað, það hefur ringt, það hefur frosið og það hefur snjóað aftur. Þannig að við náum aldrei að klára verkefnið okkar í raun og veru að hreinsa almennilega áður en næsta snjókoma hefst. Þannig að við höfum þurft að taka vélar og tæki og mannskap úr lægsta forganginum okkar á húsagötum og setja aftur yfir í önnur verkefni til að bara byrja upp á nýtt,“ segir Hjalti Jóhannes Guðmundsson skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins.
Þannig hafa húsagötur margar hverjar margar þurft að bíða og erfitt að aka þær sumar. Þá gerir klaki snjóruðningsmönnum erfitt fyrir.
Ekki verið jafn slæmt ástand í mörg ár
Þorkell Hjaltason hefur síðustu vikurnar farið um á gröfunni sinni og mokað götur borgarinnar. Hann segir ástandið með því verra sem hann hefur séð sér í lagi það hversu mikill klaki hefur myndast.
„Þetta er alveg nýtt. Allavega núna. Þetta var meira svona í kringum 1980 þá var ég líka í snjómokstri. Þá var þetta oft svona. Þetta hefur ekki sést í mörg ár,“ segir Þorkell.
Þorkell segir marga orðna lúna eftir langa vinnutörn.
„Ég held að menn séu orðnir svolítið þreyttir á þessu. Þetta er bara svo erfitt viðureignar, það er aðallega það, allavega síðustu daga,“ segir Þorkell.
![](https://www.visir.is/i/DE42844DEB97D373F90C41A09D22D72CF31473802C6B400B7FDC089840B1204C_713x0.jpg)
Talið er að kostnaður borgarinnar vegna snjómoksturs hafi verið 15-20 milljónir hvern dag síðustu vikurnar. Áætlað er að kostnaðurinn fyrir febrúar verði um 300 milljónir króna en síðustu ár hefur hann verið frá 120 milljónum til 150 milljóna fyrir þennan mánuð.
„Ég er hræddur um að kostnaður tvöfaldist enda erum við með tugi véla úti, fullt af fólki, þannig að þessi kostnaður náttúrulega bara hrannast upp í svona árferði,“ segir Hjalti.
Hjalti segir að áfram muni mæða mikið á þeim sem sinna snjómokstri í borginni.
„Miðað við veðurspá þá er bara tíðin enn þá rysjótt þannig að við bara verðum í þessum sömu verkefnum og ég er búinn að vera lýsa næstu daga,“ segir Hjalti.