Lífið

Ragnar Kjartansson og Kári Stefánsson á friðartónleikum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hallgrímskirkja á Vetrarnótt. Friðartónleikarnir hefjast klukkan 18 á morgun.
Hallgrímskirkja á Vetrarnótt. Friðartónleikarnir hefjast klukkan 18 á morgun. Vísir/Vilhelm

Boðað hefur verið til friðartónleika í Hallgrímskirkju klukkan 18 á morgun vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma fram. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

„Úkraínumenn sæta nú miskunnarlausum árásum frá nágrönnum sínum, Rússum. Við fyllumst sorg, reiði og varnarleysi yfir þessari mannvonsku og illsku. Öllum sem vilja sýna samhug með úkraínsku þjóðinni og rússneskum almenningi sem mætir grimmd og harðræði fyrir að mótmæla innrásinni, er boðið á tónleika í Hallgrímskirkju á morgun, þriðjudag 8. mars, klukkan 18:00,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum.

Fram koma meðal annars: Ragnar Kjartansson, Kór Hallgrímskirkju, KK, Ellen Kristjánsdóttir, Þorsteinn Einarsson í Hjálmum, Alexandra Chernyshova, Jói P og Króli, Elín Ey, Sigga og Beta og Eyþór Gunnarsson. Ávörp flytja Christofer Christofer og Kári Stefánsson.

Fólk er velkomið húsrúm leyfir og hægt verður að kveikja á friðarljósi fyrir Úkraínu.

„Þessi mikli harmleikur snertir okkur öll.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.