Lífið

Justin Bieber óttast um eiginkonu sína Hailey

Elísabet Hanna skrifar
Hjónin eru ástfangin upp fyrir haus.
Hjónin eru ástfangin upp fyrir haus. Getty/Kevin Mazur

Hailey Bieber var lögð inn á spítala í síðustu viku vegna blóðtappa í heilanum og hefur eiginmaður hennar Justin Bieber varla getað sofið úr áhyggjum síðan. Henni heilsast vel í dag og vonandi er um einangrað atvik að ræða.

Hailey var lögð inn á spítala í Palm Springs vegna einkenna sem minntu á heilablóðfall. Hún opnaði sig um atvikið við fylgjendur sína eftir að upphaflega hafði verið staðfest að hún væri ekki heil heilsu án nánari upplýsinga.

„Á fimmtudagsmorgun sat ég við morgunverðarborðið með eiginmanni mínum þegar ég byrjaði að fá einkenni sem minntu á heilablóðfall,“

sagði Hailey frá á samfélagsmiðli sínum. Í kjólfarið var hún flutt á spítala þar sem orsök einkennana komu í ljós.

„Þau sáu að ég hafði verið með með lítinn blóðtappa  í heilanum sem olli súrefnisskorti en líkaminn minn hafði losað sig sjálfur við tappann og ég var orðin full heilsu innan nokkurra klukkutíma.“

Hún bætti því við að þó að þetta hafi verið eitt óhugnarlegasta atvik lífsins sé hún komin heim og í góðu ástandi. Hún þakkar öllum hjúkrunarfræðingunum og læknunum sem hugsuðu um hana á spítalanum. 


Tengdar fréttir

Justin Bieber er með Covid og frestar tónleikum

Söngvarinn Justin Bieber þurfti að aflýsa tónleikum sínum í Las Vegas í gær með aðeins sólarhrings fyrirvara. Fulltrúi poppstjörnunnar staðfesti í samtali við People að ástæðan væri að Bieber greindist með Covid.

Hailey Bieber mögulega að setja á markað sitt eigið vörumerki

HI beauty teymið Heiður Ósk og Ingunn Sig, þáttastjórnendur Snyrtiborðsins, lifa og hrærast í heimi snyrtivara, förðunar og hárs. Í nýjasta pistlinum velta þær fyrir sér hvað sé að gerast hjá ofurfyrirsætunni Haylie Bieber, eiginkonu Justin Bieber. Við gefum þeim orðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.