Innlent

Ása Berg­lind leiðir Í­búa­listann í Ölfusi

Atli Ísleifsson skrifar
Frambjóðendur Ísúalistans í Ölfusi.
Frambjóðendur Ísúalistans í Ölfusi. Aðsend

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, 37 ára menningarstjórnandi, frumkvöðull og tónlistarkennari, mun leiða Íbúalistann í Ölfusi sem býður fram í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Í tilkynningu segir að um sé að ræða nýtt framboð í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Það eru kraftmiklir og ólíkir einstaklingar sem mynda Íbúalistann en það sem sameinar þá er ástríða fyrir velferð samborgara sinna og viljinn til að bjóða fram krafta sína á komandi kjörtímabili til að vinna að málefnum Sveitarfélagsins Ölfuss.

Íbúalistinn vinnur nú að mótun stefnumála og vill gera það í virku samtali við íbúa, því vilji íbúa skiptir máli. Frambjóðendur munu bjóða upp á málefnafundi á næstunni og eru öll áhugasöm hvött til að hafa samband með því að senda póst á ibualistinn@gmail.com eða hringja beint í einhvern af frambjóðendum Íbúalistans,“ segir í tilkynningunni.

Frambjóðendur Íbúalistans í Ölfusi

  1. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, 37 ára menningarstjórnandi, frumkvöðull og tónlistarkennari
  2. Böðvar Guðbjörn Jónsson, 29 ára hugbúnaðarsérfræðingur
  3. Berglind Friðriksdóttir, 33 ára sálfræðingur
  4. Sigfús Benóný Harðarson, 42 ára aðalvarðstjóri hjá ríkislögreglustjóra
  5. Hrafnhildur Lilja Harðardóttir, 38 ára sálfræðingur
  6. Rumyana Björg Ivansdóttir, 56 ára sjúkraliði
  7. Arna Þórdís Árnadóttir, 40 ára verkefnastjóri
  8. Steingrímur Þorbjarnarson, 58 ára jarð- og mannfræðingur
  9. Guðlaug Arna Hannesdóttir, 27 ára geislafræðingur
  10. Guðmundur Oddgeirsson, 64 ára öryggis- og vinnuverndarfulltrúi
  11. Agnes Erna Estherardóttir, 46 ára bókhaldari, söngkona og smiður.
  12. Davíð Reimarsson, 30 ára stuðningsfulltrúi
  13. Óskar Hrafn Guðmundsson, 62 ára verkamaður
  14. Elín Björg Jónsdóttir, 69 ára eftirlaunakona



Fleiri fréttir

Sjá meira


×