Innlent

Eldur kom upp í bíl á Miklu­braut

Atli Ísleifsson skrifar
Slökkvilið að störfum á Miklubraut.
Slökkvilið að störfum á Miklubraut. Aðsend

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í bíl á Miklubraut, milli Háaleitisbrautar og Grensásvegar skömmu fyrir klukkan níu í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði barst tilkynningin um klukkan 8:45 og slapp ökumaður óhultur úr bílnum. 

Eldurinn kom upp þegar bíllinn var á ferð.

Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×