Jafnframt fór Viðar fram á að Agnieszka myndi upplýsa sig um eðli meintra ásakana á hendur honum og leiðrétta ummæli sem hún lét falla á fundi trúnaðarráðs Eflingar í febrúar.
Í bréfi sem var sent Viðari fyrir hönd Agnieszku segir að hún beri ríka skyldu til þess að fylgjast með fjármálum Eflingar sem formaður stéttarfélagsins og halda stjórn og trúnaðarráði upplýstu um þau. Þá var vísað til þess að hún njóti tjáningarfrelsis í samræmi við stjórnarskrá.
Einnig segir að Viðar þurfi að sætta sig við það að störf hans, fjárhagslegar ákvarðanir og ráðstöfun á fjármunum félagsins komi til umræðu hjá formanni og stofnunum Eflingar.
Hótaði að fara með málið fyrir dómstóla
Í bréfi sem lögfræðingur Viðars sendi Agnieszku þann 22. febrúar, og fréttastofa hefur jafnframt undir höndum, segir að til greina komi að fara með málið fyrir dómstóla ef formaðurinn verði ekki við áðurnefndum kröfum.
Málið varðar ummæli sem Agnieszka á að hafa látið falla á fundi trúnaðarráðs Eflingar þann 16. febrúar síðastliðinn. Í bréfi til Agnieszku er fullyrt að hún hafi á fundinum sakað Viðar um að „hafa á einhvern hátt misfarið með fé félagsins og/eða brotið lög í tengslum við vefsíðugerð fyrir Eflingu meðan hann gegndi starfi framkvæmdastjóra Eflingar.“
Þá hafi verið fullyrt að reikningarnir hafi ekki verið samþykktir með eðlilegum hætti. Viðar segir þetta rangar og alvarlegar ásakanir sem Agnieszka hafi látið falla við önnur tækifæri.
Snýst málið um samning Eflingar við Andra Sigurðssonar og fyrirtæki hans Sigur vefstofu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var ýjað að því á áðurnefndum fundi trúnaðarráðs að ekki hafi verið staðið að samningum við Andra með lögmætum hætti og að Agnieszka væri að „rannsaka“ málið. Kostnaður við samninginn var sagður hafa hlaupið á mörgum, ef ekki tugum, milljóna króna.
Óskað eftir úttekt endurskoðenda
Í kjölfar fundar trúnaðarráðs óskaði Efling eftir því að endurskoðunarfyrirtækið Deloitte myndi yfirfara viðskipti stéttarfélagsins við Sigur vefstofu. Að sögn Viðars gerði fyrirtækið engar athugasemdir við viðskiptin. Í kjölfarið hafi stjórn Eflingar samþykkt að láta lögfræðing framkvæma sérstaka lögfræðiúttekt.
Sjálfur hefur Viðar sagt að ekkert athugavert sé við viðskipti Eflingar við vefhönnunarfyrirtækið sem hafi útbúið nýja vefsíðu fyrir félagið og sinnt öðrum verkefnum tengdum vefsíðugerð og hönnunarvinnu. Reikningum hafi fylgt tímaskýrslur og þeir samþykktir af starfsmönnum og stjórnendum sem til þess höfðu umboð.
Samþykkt reikninga hafi verið í samræmi við verkferla sem unnið hafi verið eftir á skrifstofunni og vinnan í fæstum tilvikum verið framkvæmd að ósk Viðars.