Svein­dís Jane kom inn af bekknum í jafn­tefli Wolfs­burg og Arsenal: Sjáðu mörkin og fleira til

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sveindís Jane pirruð eftir að Maria-Joelle Wedemeyer fékk gult spjald í uppbótartíma. Hún missir því af síðari leik liðanna.
Sveindís Jane pirruð eftir að Maria-Joelle Wedemeyer fékk gult spjald í uppbótartíma. Hún missir því af síðari leik liðanna. Vincent Mignott/Getty Images

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn af varamannabekk Wolfsburg er liðið var hársbreidd frá því að leggja Arsenal í Lundúnum í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, lokatölur 1-1.

Leikur Arsenal og Wolfsburg var hin besta skemmtun en það var deginum ljósara að það var mikið undir og spennustigið hátt. Gestirnir frá Þýskalandi tóku forystuna á 19. mínútu þegar Tabea Waßmuth stangaði fyrirgjöf Mariu-Joelle Wedemeyer í netið. 

Var þetta hennar 9. mark í 7 Meistaradeildarleikjum á tímabilinu.

Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks og gestirnir í fínum málum. Arsenal gerði hvað þær gátu til að jafna metin. Um tíma lifði Arsenal  á lyginni einni saman en Wolfsburg skaut tvívegis í stöngina í einni og sömu sókninni. Það átti eftir að reynast dýrkeypt, sérstaklega eftir að þær  Tobin Heath, Nikita Parris og Frida Leonhardsen-Maanum voru sendar á vettvang til að breyta gangi mála.

Á sama tíma kom Sveindís Jane Jónsdóttir inn af bekk gestanna. Eflaust var uppleggið að nýta hraða hennar í skyndisóknum en þarna var Arsenal farið að sækja í sig veðrið. Var minnst á gríðarlegan hraða Sveindísar Jane og þá staðreynd að hún hafi skorað tvö mörk í fyrsta byrjunarliðsleiknum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í lýsingu sjónvarpstöðvarinnar DAZN.

Því miður fyrir Wolfsburg fékk Sveindís Jane engin færi til að tryggja sigurinn en segja má að skiptingar Arsenal hafi gengið upp. Þegar ein mínúta var til loka venjulegs leiktíma fengu þær aukaspyrnur frekar langt frá marki.

Tobin Heath þrumaði í átt að marki en skotið virtist hættu lítið. Það er þangað til varnarmaðurinn Carlotte Wubben-Moy náði frábærri snertingu, tókst að leggja boltann fyrir sig og lúðraði honum svo í markið af öllu afli.

Staðan orðin 1-1 og reyndust það lokatölur á Emirates-vellinum í Lundúnum. Það er því allt galopið í viðureign liðanna en þau mætast aftur á fimmtudeginum í næstu viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira