Sveindís Jane kom inn af bekknum í jafntefli Wolfsburg og Arsenal: Sjáðu mörkin og fleira til Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. mars 2022 22:15 Sveindís Jane pirruð eftir að Maria-Joelle Wedemeyer fékk gult spjald í uppbótartíma. Hún missir því af síðari leik liðanna. Vincent Mignott/Getty Images
Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn af varamannabekk Wolfsburg er liðið var hársbreidd frá því að leggja Arsenal í Lundúnum í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, lokatölur 1-1. Leikur Arsenal og Wolfsburg var hin besta skemmtun en það var deginum ljósara að það var mikið undir og spennustigið hátt. Gestirnir frá Þýskalandi tóku forystuna á 19. mínútu þegar Tabea Waßmuth stangaði fyrirgjöf Mariu-Joelle Wedemeyer í netið. Var þetta hennar 9. mark í 7 Meistaradeildarleikjum á tímabilinu. Who else? TABEA WASSMUTH GIVES @VfL_Frauen THE LEAD https://t.co/ngIlqDajM8 https://t.co/m66X2bVMV0 pic.twitter.com/nt6XeICZVg— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks og gestirnir í fínum málum. Arsenal gerði hvað þær gátu til að jafna metin. Um tíma lifði Arsenal á lyginni einni saman en Wolfsburg skaut tvívegis í stöngina í einni og sömu sókninni. Það átti eftir að reynast dýrkeypt, sérstaklega eftir að þær Tobin Heath, Nikita Parris og Frida Leonhardsen-Maanum voru sendar á vettvang til að breyta gangi mála. ARSENAL GET THE EQUALISER What a ball from @TobinHeath and @lottewubbenmoy with a superb finish https://t.co/ngIlqDajM8 https://t.co/m66X2bVMV0 pic.twitter.com/yFpdtswlqm— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Á sama tíma kom Sveindís Jane Jónsdóttir inn af bekk gestanna. Eflaust var uppleggið að nýta hraða hennar í skyndisóknum en þarna var Arsenal farið að sækja í sig veðrið. Var minnst á gríðarlegan hraða Sveindísar Jane og þá staðreynd að hún hafi skorað tvö mörk í fyrsta byrjunarliðsleiknum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í lýsingu sjónvarpstöðvarinnar DAZN. Því miður fyrir Wolfsburg fékk Sveindís Jane engin færi til að tryggja sigurinn en segja má að skiptingar Arsenal hafi gengið upp. Þegar ein mínúta var til loka venjulegs leiktíma fengu þær aukaspyrnur frekar langt frá marki. ARSENAL GET THE EQUALISER What a ball from @TobinHeath and @lottewubbenmoy with a superb finish https://t.co/ngIlqDajM8 https://t.co/m66X2bVMV0 pic.twitter.com/yFpdtswlqm— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Tobin Heath þrumaði í átt að marki en skotið virtist hættu lítið. Það er þangað til varnarmaðurinn Carlotte Wubben-Moy náði frábærri snertingu, tókst að leggja boltann fyrir sig og lúðraði honum svo í markið af öllu afli. Arsenal's late goal from behind the net https://t.co/ngIlqDajM8 https://t.co/m66X2bVMV0 pic.twitter.com/pqdGrE2PfF— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Staðan orðin 1-1 og reyndust það lokatölur á Emirates-vellinum í Lundúnum. Það er því allt galopið í viðureign liðanna en þau mætast aftur á fimmtudeginum í næstu viku.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Tengdar fréttir Leikur Lyon hrundi eftir rautt spjald Carpenter: Sjáðu mörkin og helstu atvik Juventus vann 2-1 sigur á Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Lyon var með pálmann í höndunum en Ellie Carpenter fékk rautt spjald í liði Lyon og heimakonur nýttu liðsmuninn til hins ítrasta. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á bekk Lyon í kvöld. 23. mars 2022 19:45
Leikur Lyon hrundi eftir rautt spjald Carpenter: Sjáðu mörkin og helstu atvik Juventus vann 2-1 sigur á Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Lyon var með pálmann í höndunum en Ellie Carpenter fékk rautt spjald í liði Lyon og heimakonur nýttu liðsmuninn til hins ítrasta. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á bekk Lyon í kvöld. 23. mars 2022 19:45
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“