Í færslu sem Smith birti á samfélagsmiðlum nú fyrir skemmstu segir hann að ofbeldi sé „eitrað og eyðileggjandi, í öllum sínum birtingarmyndum.“
„Hegðun mín á Óskarsverðlaunahátíðinni í gærkvöldi var óásættanleg og óafsakanleg. Brandarar á minn kostnað eru hluti starfsins, en brandari um sjúkdóm Jada var of mikið fyrir mig og ég brást við af tilfinningasemi,“ segir Smith.
Í færslunni biður hann Rock opinberlega afsökunar og segist hafa breytt rangt. Hann skammist sín fyrir gjörðir sínar, sem endurspegli ekki hvaða mann hann hafi að geyma. Þá sé ekkert pláss fyrir ofbeldi í heimi „ástar og kærleiks,“ eins og hann orðar það.
„Ég vil líka biðja kvikmyndaakademíuna afsökunar, framleiðendur þáttarins, alla gesti og alla þá sem horfðu um víða veröld,“ skrifar hann. Eins biður hann Williams-fjölskylduna afsökunar, sem og þá sem komu að gerð myndarinnar King Richard, sem hann vann Óskarsverðlaun fyrir sem besti leikari í aðalhlutverki, en myndin fjallar um samband tennissystranna Venus og Serenu við föður sinn, Richard.
„Mér þykir leitt að hegðun mín hafi varpað skugga á annars hamingjuríkt ferðalag okkar. Ég er enn óklárað verk. Innilega, Will.“
Akademían óánægð
Margir meðlimir bandarísku kvikmyndaakademíunnar eru sagðir æfir vegna uppákomunnar.
Rolling Stone hefur rætt við nokkra meðlimi akademíunnar, sem fengust til að koma í viðtal vegna málsins gegn því að vera veitt nafnleynd. Einn þeirra segir að Smith hefði auðveldlega getað brugðist við brandaranum úr sæti sínu.
„Þess í stað ákvað hann að labba einhver tuttugu skref og slá Rock.“
Fleiri sem Rolling Stone ræddi við segja að brandarinn örlagaríki hafi ekki verið hluti af æfingu fyrir hátíðina, sem hafði farið fram nokkrum dögum áður.

Atvikið skyggði á hátíðina
Rolling Stone hefur það þá eftir heimildum að höggið sem Smith veitti Rock hefði skyggt á það sem eftir lifði verðlaunaafhendingar, sérstaklega á verðlaunin fyrir bestu heimildamynd, sem Rock veitti myndinni Questlove, skömmu eftir að Smith fór upp á sviðið og sló hann.
Þannig hafi margir gestir ekkert fylgst með ræðu aðstandenda myndarinnar, heldur verið uppteknir við að horfa á myndband af högginu í snjallsímum sínum.
Afleiðingarnar muni koma í ljós
Hvorki Smith né Rock létu sjá sig á Governors-dansleiknum, sem er eins konar eftirpartý sem haldið er beint eftir verðlaunaafhendinguna, og sigurvegarar kvöldsins eru þar oftar en ekki hrókar alls fagnaðar. Líkt og áður sagði vann Smith sín fyrstu Óskarsverðlaun á hátíðinni, fyrir leik í aðalhlutverki í kvikmyndinni King Richard.
Smith mætti hins vegar í Vanity Fair-veisluna síðar um nóttina, og er sagður hafa hagað sér eins og ekkert hafi í skorist.
Rolling Stone hefur hins vegar eftir Howard Bragman, fjölmiðlafulltrúa sem sérhæfir sig í krísustjórnun (e. crisis publicist) að Smith muni líklega finna fyrir einhverjum afleiðingum vegna málsins, sem hafi vakið upp spurningar um dómgreind hans.
„Hann verður krufinn eins og froskur í náttúrufræðitíma á næstu dögum og vikum.
Líkt og áður hefur verið greint frá er kvikmyndaakademían nú með málið til rannsóknar, en meðal þess sem er til skoðunar er að svipta Smith Óskarsverðlaununum sem hann hlaut.