Erlent

Bein útsending: Ferðamönnum skotið til geimstöðvarinnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Það er mikið um að vera í Kennedy geimmiðstöðinni í Flórída þessa dagana. Í bakgrunni má sjá fyrstu SLS-eldflaugina og Orion-geimfar sem skjóta á til tunglsins á næstunni.
Það er mikið um að vera í Kennedy geimmiðstöðinni í Flórída þessa dagana. Í bakgrunni má sjá fyrstu SLS-eldflaugina og Orion-geimfar sem skjóta á til tunglsins á næstunni. AP/Joel Kowsky/NASA

Fyrsta mannaða geimferð Axiom Space verður farin í dag. Þremur ferðamönnum og einum geimfara verður skotið til geimstöðvarinnar með eldflaug og í geimfari SpaceX.

Fólkið mun verja tíu dögum í geimnum og þar af átta um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þar munu ferðamennirnir lenda á laugardaginn, samkvæmt áætlunum.

Michael López-Alegría, fyrrverandi geimfari Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og núverandi geimfari Axiom Space, stýrir geimferðinni sem ber titilinn Ax-1. Með honum verða þeir Larry Connor, Eytan Stibbe og Mark Pathy.

Geimfararnir fjórirAxiom Space

Samkvæmt frétt Space.com hefur veðrið í Flórída verið leiðinlegt síðustu daga en er búist við því að það muni skána í dag og vera orðið gott fyrir geimskotið.

Skotglugginn svokallaði opnast klukkan 15:17 í dag og má fylgjast með geimskotinu í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan.

Geimfararnir fjórir segjast hafa undirbúið sig mjög svo fyrir geimferðina og dvölina í geimstöðinni. Sá undirbúningur hafi meðal annars falist í því að æfa sig í að halda sér hreinum í geimnum og að fara á klósettið. Þeir hafi sömuleiðis æft neyðarviðbrögð og viðhald um borð í geimstöðinni.

Þá fara þeir með á þriðja tug vísindatilrauna til geimstöðvarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×