Skoðun

Tímaþjófurinn í borginni!

Ómar Már Jónsson skrifar

Virtir hagfræðingar hafa reiknað út að kostnaður höfuðborgarbúa af umferðatöfum í borginni sé yfir 50 milljarðar kr. á ári fyrir höfuðborgarbúa. Ef við dreifum þeim kostnaði á alla íbúa höfuðborgarsvæðisins, sem eru eldri en 18 ára, samsvarar það rúmum 320 þúsund krónum á mann á ári.

Nær engar úrbætur hafa verið gerðar af borgarstjórn síðustu áratugi á samgöngum í Reykjavík og er staðan óbærileg þegar kemur að flæði umferðar og umferðaröryggi.

Vill fólk ekki fremur eyða þeim tafa fjármunum og tíma til að gera eitthvað skemmtilegt með sínum nánustu? Væri þeim tíma og peningum ekki betur varið í góðar utanlandsferðir en að eyða að óþörfu í umferðartafir?

Ég get tekið dæmi úr mínu lífi.

Ég og fjölskyldan mín búum í Seljahverfi og dóttir mín stundar nám við Háskóla Reykjavíkur. Hún notar eigin bíl í skólann og ég spurði hana af hverju hún noti ekki strætó í skólann.

Hún segir: Ef ég nota strætó tekur það mig 45 mín að fara aðra leiðina, samtals 1,5 klst. á dag. Ef ég nota bílinn minn, þá tekur það mig 15 mín. hvora leið, samtals 30 mín.

Hún sparar semsagt um 20 klukkutíma á mánuði með því að nota sinn eigin bíl. Ég spurði hana, en ef það væri frítt í strætó, myndirðu þá ekki nota hann?

Svarið var nei, tíminn minn er dýrmætari en það.

Borgarlínan umtalaða er ekki að fara að stytta ferðatíma dóttur minnar.

Samgöngusáttmálin sem undirritaður var 26. september 2019 gengur út á greiðari samgöngur, fjölbreyttari ferðamáta og aukið umferðaröryggi.

Athyglisvert er að í sáttmálanum var talað um að hefjast strax handa við betri umferðarstýringu, þ.e. árið 2019: ,,Ráðist verður strax í markvissar aðgerðir til að nýta nýjar tæknilausnir og bæta umferðarljósakerfi á höfuðborgarsvæðinu í takt við markmið samkomulagsins“.

Nú eru liðin tæp þrjú ár síðan ofangreint var samþykkt. Enn í dag bólar ekkert á þeim mikilvæga þætti samkomulagsins sem er ótvírætt ein besta forvörnin til að tryggja öryggi, fækka slysum, bæta umferðarflæði og minnka tafatíma í umferðinni.

Stöðugt meiri og lengri tafir í samgöngum eru lífsgæðaskerðing sem er þröngvað upp á höfuðborgarbúa vegna vanefnda meirihlutans í borginni. Að þessu leyti er borgarmeirihlutinn enn og aftur að falla á prófinu um að gera samgöngur í borginni betri.

Miðflokkurinn mun beita sér fyrir því að bæta umferðarflæði, stytta tafatíma og fækka slysum á götum borgarinnar.

Hættum að tafsa, setjum X við M og látum brýn verkefni í framkvæmd.

Höfundur er oddviti X-M til borgarstjórnar og fyrrverandi sveitarstjóri.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×