Fótbolti

Óskar Örn: Eigum að klára svona leik með sigri

Hjörvar Ólafsson skrifar
278698642_995189121357370_3244544065458883144_n

Óskar Örn Hauksson er kominn á blað með Stjörnumönnnum í Bestu-deildinnni í fótbolta karla en hann skoraði seinna mark liðsins þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Skagamönnum í fyrstu umferð deildarinnar í kvöld.

Óskar Örn Hauksson er kominn á blað með Stjörnumönnnum í Bestu-deildinnni í fótbolta karla en hann skoraði seinna mark liðsins þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Skagamönnum í fyrstu umferð deildarinnar í kvöld. 

Óskar Örn var hins vegar meira umhugað um svekkelsið að fara ekki með sigur af hólmi en markið sem hann skoraði eftir leikinn. Honum fannst spilamennska Stjörnuliðsins hafa verðskuldað meira en eitt stig. 

„Eftir að hafa komist yfir þá eigum við að ná að sigla þessu heim. Þetta spilaðist svolítið upp í hendurnar á þeim í fyrri hálfleik. Við vorum meira með boltann og vorum að skapa fleiri færi en skyndisókn hjá þeim kemur þeim yfir. Þá geta þeir lagst niður á völlinn og varist aftarlega," sagði Óskar Örn Hauksson eftir fyrsta deildarleik sinn með Stjörnunni.

Eins og Óskari Erni er von og vísa var mark hans einkar snoturt en hann lýsti því á eftirfarandi hátt: „Ég náði að skrúfa boltann framhjá varnarmanninum og ég sá eiginlega ekkert fyrr en að menn fóru bara að fagna. Þá vissi ég að boltinn hefði endað í markinu."

„Tilfinningin að spila hérna í Garðabænum var vissulega öðruvísi en hún var bara góð. Það er líka bara gott að vera kominn út á völlinn eftir langan og þungan vetur. 

Spilamennskan í þessum leik var góð þrátt fyrir að niðurstaðan sé vonbrigði. Við náðum góðum sóknum og getum byggt á þessu," sagði þessi margreyndi leikmaður sem spilaði inni á miðjunni í þessum leik. Óskar Örn var að hefja sitt 19. keppnistímabil í efstu deild í kvöld og markið sem hann skoraði var það 86. í leik númer 349. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×