Þær Elsa og Viktoría voru annað tveggja para sem leidd voru saman á blint stefnumót í þætti þrjú og áttu þær stöllur ekki í vandræðum með að halda uppi samræðum, sem voru skemmtilega skrautlegar á tímabili.
Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)
Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þátt þrjú, en hafa enn ekki séð hann, þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.
Þó svo að Elsa og Viktoría séu kannski ólíkar áttu þær vel saman á stefnumótinu eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan.
Elsa og Viktoría hafa ekki hist aftur eftir stefnumótið og eru báðar einhleypar í dag og í leit að ævintýrum.

„Ég er samt enginn „serial dater““
Það fór ansi vel á með dýralækninum Andreu og bifvélavirkjanum Sævari á blindu stefnumóti. Parið virtist eiga margt sameiginlegt og hikaði Andrea ekki við að spyrja Sævar spjörunum úr strax í byrjun stefnumótsins eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan.
Andrea og Sævar áttu nokkur stefnumót eftir þættina en samkvæmt nýjustu heimildum eru þau ekki orðin par í dag.
Fyrsta bliks lagalistar á Spotify
Tónlistin úr þáttunum hefur vakið töluverða athygli og nú verður hægt að nálgast lögin úr hverjum þætti inn á Spotify síðu Fyrsta bliksins.
Þeir sem vilja koma sér í réttu stemninguna fyrir kvöldið geta nálgast lagalista úr þætti tvö og eitt hér fyrir neðan.
Þriðji þáttur:
Annar þáttur:
Fyrsti þáttur:
Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ.
Aðdáendur Fyrsta bliksins geta fylgst með skemmtilegu aukaefni á Instagram síðu þáttarins @fyrstablikid.
Þættirnir eru átta talsins og verða á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55. Í kjölfarið verða allir þættirnir aðgengilegir á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.