Lífið

„Hann er heppinn að vera á lífi“

Elísabet Hanna skrifar
Jensen Ackles og Jared Padalecki léku bræður í Supernatural.
Jensen Ackles og Jared Padalecki léku bræður í Supernatural. Getty/Jon Kopaloff

Jansen Ackles segir fyrrum mótleikara sinn í Supernatural Jared Padalecki vera heppinn að vera á lífi eftir að hafa lent í bílslysi. Ackles deildi fréttunum með leyfi frá Padalecki á ráðstefnu í tengslun við þættina. 

Jared Padalecki er ekki aðeins þekktur fyrir leik sinn í Supernatural heldur sló hann einnig í gegn sem Dean í Gilmore Girls á sínum tíma. Ackles segir hann hafa lent í mjög slæmu bílslysi en að þeir hafi rætt saman daginn áður og að hann sendi ást á aðdáendur þáttarins sem voru komnir á ráðstefnuna.

„Hann lenti í mjög slæmu bílslysi. Hann var ekki að keyra, hann var í farþegasætinu og hann er heppinn að vera á lífi,“

deildi hann. Hann segir hann vera heima að jafna sig og að það sé ótrúlegt að hann sé ekki staddur á spítala eftir slysið þar sem bíllinn hafi verið í molum. Hann segir loftpúðann hafa skipt sköpum en hann valdi höggi og segir Padalecki hafa lýst líðaninni líkt og hann hafi klárað tólf lotur í hringnum með Mike Tyson. 

Aðdáendur voru ekki lengi að senda honum hlýjar hugsanir og fallegar kveðjur með myllumerkinu #WeLoveYouJaredPadalecki og #GetWellSoonJared.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×