Sjúkdómurinn greindist í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru úr villtum, dauðum fuglum í síðustu viku. Fimm sýni reyndust óljós og verða rannsökuð nánar, en einungis tvö voru neikvæð. Fyrsti fuglinn sem greindist var haförn við Breiðafjörð sem drapst 2021. Síðan þá hafa fundist sjö sýktar súlur - fjórar á Suðurnesjum og þrjár við Búðir á Snæfellsnesi. Ein smituð heiðagæs fannst við Hornafjörð, einn hrafn í Árnessýslu, ein grágæs á Akureyri og einn svartbakur á Húsavík. Nokkrar heimilishænur á bænum Skeið í Árnessýslu reyndust líka smitaðar og voru þær aflífaðar.
Líklegt að fuglarnir séu með skætt afbrigði flensunnar
Sýni sem tekin voru úr alifuglum á tveimur stöðum í síðustu viku voru neikvæð. Matvælastofnun ítrekar mikilvægi þess að fuglaeigendur verndi fugla sína gegn smiti. Enn er beðið eftir niðurstöðum frá Þýskalandi sem segja til um hvort haförninn sé sá eini sem sé smitaður af H5N1 afbrigðinu - sem er mjög smitandi og mjög banvænt - en óttast er að hinir fuglarnir hafi smitast af sama afbrigðinu, sem er nú dreift víða um Evrópu. Nú er í gildi gult viðbúnaðarstig vegna sjúkdómsins, en það verður hækkað í rautt þegar og ef smit greinist á alifuglabúum. Matvælastofnun hefur tekið saman ýmsan fróðleik um fuglaflesuna á vef sínum.