Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.

Fundur fjárlaganefndar með fulltrúum Bankasýslunnar sem fram fór í morgun verður fyrirferðarmikill í hádegisfréttum okkar.

Þangað mættu forstjóri og stjórnarformaður stofnuarinnar sem setið hefur undir mikilli gagnrýni í kjölfar sölunnar á hlut ríkisins í Íslandsbanka. 

Þá fjöllum við um þá staðreynd að Vísitalan fyrir innflutt byggingarefni hefur hækkað um 5,5 prósent í mánuðinum og verð á stáli hefur fjórfaldast á skömmum tíma. Framkvæmdastjóri  Samtaka iðnaðarins segir að sögulegar hækkanir á aðföngum séu í mörgum tilvikum forsendubrestur.

Þá tökum við stöðuna í Úkraínu og ræðum við Þórólfur Guðnason sóttvarnalækni um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum en Þórólfur smitaðist sjálfur af veirunni á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×