Hin litríka og ofurhressa Þórunn Anna og hinn rólegi og einlægi Guðmundur Sigurður áttu áhugavert blint stefnumót þar sem samræðurnar voru kannski heldur óhefðbundnar.
Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)
Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þátt fimm, en hafa enn ekki séð hann, þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.
....
Bæði hafa Þórunn og Guðmundur mikinn áhuga á bílum og mótorsporti en Þórunn sem er 28 ára gömul starfar sem bifvélavirki.
Sjálfboðasamtökin AUS eiga hug og hjarta Guðmundar sem starfar einnig hjá Terra umhverfisþjónustu.
Í fyrstu virtust Guðmundur og Þórunn eiga eitt og annað sameiginlegt og byrjaði sefnumótið bara nokkuð vel. En eftir því sem að leið á stefnumótið mátti sjá að rómantíkin var ekkert endilega að þvælast alltof mikið fyrir.
Þrátt fyrir að stemmningin hafi kannski verið aðeins rafmögnuð á tímabili skemmtu Þórunn og Guðmundur sér vel eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan.
Þórunn og Guðmundur voru samt sem áður glöð með reynsluna og eru í dag bæði einhleyp og í leit að ástinni.
Fyrsta bliks lagalistar á Spotify
Tónlistin úr þáttunum hefur vakið töluverða athygli og nú verður hægt að nálgast lögin úr hverjum þætti inn á Spotify síðu Fyrsta bliksins.
Þeir sem vilja koma sér í rómantíska stemmningu geta nálgast lagalistana úr þáttunum hér fyrir neðan.
Fimmti þáttur:
Fjórði þáttur:
Þriðji þáttur:
Annar þáttur:
Fyrsti þáttur:
Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ.
Aðdáendur Fyrsta bliksins geta fylgst með skemmtilegu aukaefni á Instagram síðu þáttarins @fyrstablikid.
Þættirnir eru átta talsins og verða á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55. Í kjölfarið verða allir þættirnir aðgengilegir á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.