Með rúmlega tvöfalt fleiri mörk í oddaleiknum en í leik eitt og tvö til samans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2022 12:00 Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er heldur betur komin á flug. Vísir/Hulda Margrét Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var án nokkurs vafa leikmaður gærkvöldsins í Olís-deild kvenna í handbolta þegar hún bókstaflega skaut Eyjaliðinu áfram í undanúrslitin. Hrafnhildur Hanna skoraði alls fimmtán mörk í oddaleiknum á móti Stjörnunni sem ÍBV liðið vann 30-26. Hún var líka með flotta skotnýtingu því 68 prósent skota hennar rötuðu rétta lið. Hanna hafði samtals skorað sex mörk í fyrstu tveimur leikjunum í einvíginu en tók heldur betur af skarið á úrslitastund og skoraði meira en tvöfalt meira í gærkvöldi en í hinum leikjunum til samans. Hanna skoraði sex mörk í fyrri hálfleiknum eða jafnmikið og í leik eitt og tvö til samans. Stjarnan var með tveggja marka forskot í hálfleik, 16-14. Í seinni hálfleiknum skoraði Hanna níu mörk og ÍBV vann hálfleikinn 16-10. Skyttan skoraði því aðeins einu marki minna en allt Stjörnuliðið í hálfleiknum. Hér fyrir neðan má sjá tölur Hönnu úr leikjunum þremur í Stjörnueinvíginu þar sem sést að hún hækkaði sig í öllu með hverjum leik í einvíginu. Hrafnhildur Hanna hefur verið að glíma við meiðsli en sýndi í gær að hún er komast aftur á flug sem eru frábærar fréttir fyrir Eyjamenn.
Hrafnhildur Hanna skoraði alls fimmtán mörk í oddaleiknum á móti Stjörnunni sem ÍBV liðið vann 30-26. Hún var líka með flotta skotnýtingu því 68 prósent skota hennar rötuðu rétta lið. Hanna hafði samtals skorað sex mörk í fyrstu tveimur leikjunum í einvíginu en tók heldur betur af skarið á úrslitastund og skoraði meira en tvöfalt meira í gærkvöldi en í hinum leikjunum til samans. Hanna skoraði sex mörk í fyrri hálfleiknum eða jafnmikið og í leik eitt og tvö til samans. Stjarnan var með tveggja marka forskot í hálfleik, 16-14. Í seinni hálfleiknum skoraði Hanna níu mörk og ÍBV vann hálfleikinn 16-10. Skyttan skoraði því aðeins einu marki minna en allt Stjörnuliðið í hálfleiknum. Hér fyrir neðan má sjá tölur Hönnu úr leikjunum þremur í Stjörnueinvíginu þar sem sést að hún hækkaði sig í öllu með hverjum leik í einvíginu. Hrafnhildur Hanna hefur verið að glíma við meiðsli en sýndi í gær að hún er komast aftur á flug sem eru frábærar fréttir fyrir Eyjamenn. Frammistaða Hrafnhildar Hönnu Þrastardóttur í einvíginu á móti Stjörnunni: Leikur eitt: 2 mörk úr 7 skotum (29% nýting - 6,1 í HBStatz einkunn) Leikur tvö: 4 mörk úr 8 skotum (50% nýting - 6,5 í HBStatz einkunn) Oddaleikur: 15 mörk úr 22 skotum (68% nýting - 9,7 í HBStatz einkunn)
Frammistaða Hrafnhildar Hönnu Þrastardóttur í einvíginu á móti Stjörnunni: Leikur eitt: 2 mörk úr 7 skotum (29% nýting - 6,1 í HBStatz einkunn) Leikur tvö: 4 mörk úr 8 skotum (50% nýting - 6,5 í HBStatz einkunn) Oddaleikur: 15 mörk úr 22 skotum (68% nýting - 9,7 í HBStatz einkunn)
Olís-deild kvenna ÍBV Stjarnan Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Bræðurnir góðir en Kolstad saknaði Sigvalda í tapi í Íslendingaslag Haukur og félagar unnu baráttuna um Búkarest Úrslitin í leik HK og Stjörnunnar standa Sjá meira