Hugmyndin á bak við samkeppnina var að ýta við þjóðinni og spyrja spurningarinnar „Af hverju á íslenska krónan ekki sitt eigið tákn?“ Samkeppnin var opin öllum félagsmönnun FÍT. Yfir sjötíu innsendingar bárust í keppnina og eru sextán þeirra sýnd á sýningunni ásamt yfirlits mynd þar sem hægt er að sjá öll innsendu táknin.

Á opnuninni afhentu Gísli Arnarson, formaður FÍT, og Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri, þrenn verðlaun fyrir hlutskörpustu tillögurnar. Verðlauna afhending hófst á léttum orðum frá Gísla Arnarsyni formanni FÍT og Ásgeiri Jónssyni Seðlabankastjóra Íslands.
Dómnefnd var skipuð þeim Gísla B. Björnssyni, Atla Hilmarssyni og Kristínu Evu Ólafsdóttur frá FÍT ásamt Stefáni Rafni Sigurbjörnssyni frá Seðlabanka Íslands.

Í þriðja sæti var Jón Ari Helgason með tillöguna „íslensk kóróna“ og í öðru sæti var Úlfur Kolka með tillöguna „króna“. Í fyrsta sæti voru þau Sigurður Oddson, Elísabet Rún, Sunneva Snorradóttir og Viktor Weisshappel með tillöguna „Króna + Fé“.
Í lýsingu hönnuða kemur fram að innblástur táknsins er norrænt rúnaletur og í umsögn dómnefndar var einnig rætt um sterka tengingu við söguna í rúnirnar.
„Innblásturinn er norrænt rúnaletur og er táknið annars vegar myndað úr rúninni ᚠsem merkir fé eða auð. Hins vegar myndar táknið K sem er augljós vísun í krónuna. Þannig tengir nýja táknið fortíð og nútíð, samnorrænan menningararf og íslenskan samtíma,“ segja hönnuðirnir.
Hér að neðan má sjá myndir frá viðburðinum:










