Innlent

Frænka situr uppi með kostnaðinn eftir deilur um faðerni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dómur var kveðinn upp í Landsrétti á dögunum.
Dómur var kveðinn upp í Landsrétti á dögunum. Vísir/vilhelm

Kona nokkur hefur verið dæmd til að greiða ekkju bróður síns og syni hans málskostnað og kærumálskostnað vegna faðernismáls sem hún höfðaði eftir að bróðir hennar féll óvænt frá. Dómur var kveðinn upp í Landsrétti á dögunum.

Frænkan höfðaði málið og sagðist efast um að bróðir hennar heitinn væri réttmætur faðir drengsins. Móðirin hafði lýst bróður hennar föður drengsins þegar hann fæddist en þau voru ekki í hjúskap við fæðinguna. Blóðflokkagreining var framkvæmd fljótlega eftir fæðingu sem staðfesti faðernið.

Faðirinn varð bráðkvaddur árði 2020 og höfðaði systir hans málið og byggði á því að blóðflokkagreiningin væri ónákvæm rannsókn samanborið við nútímarannsóknir. Þá væri útlit bróður hennar heitins ólíkt syninum og þeir sömuleiðis ólíkir í háttum.

Sonurinn taldi frænku sína reyna að fella niður erfðarétt hans og öðlast þannig sjálf erfðarétt. Hún hefði engin haldbær gögn eða rök máli sínu til stuðnings. Framkvæmd var mannerfðafræðileg rannsókn á meðan málið var rekið fyrir héraðsdómi og kom í ljós að yfir 99 prósenta líkur væru á því að um bróðir konunnar væri faðir drengsins.

Málið var við það fellt niður og dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur frænkuna til að greiða mæðginunum 360 þúsund krónur í málskostnað vegna málsins. Þetta voru mæðginin ekki sátt við, áfrýjuðu til Landsréttar og kröfðust þess að frænkan greiddi þeim hærri málskostnað auk kærumálskostnaðar fyrir Landsrétti.

Landsréttur tók málið til skoðunar og dæmdi frænkuna til að greiða móðurinni og syninum 600 þúsund krónur hvoru fyrir sig.

Dómur Landsréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×