Innlent

Slökktu eld við Vesturgötu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var ekki í vandræðum með að ráða niðurlögum eldsins.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var ekki í vandræðum með að ráða niðurlögum eldsins. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu slökkti í dag eld við Vesturgötu í miðbæ Reykjavíkur. Eldurinn kom upp í skúr á milli húsa. Engan sakaði.

Þetta staðfestir varðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali við fréttastofu. Slökkvistarfi á vettvangi er lokið en greiðlega gekk að slökkva eldinn, fyrir snarræði slökkviliðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×