Norðan fimm til tíu metrar á sekúndu á morgun og súld eða rigning norðan- og austanlands, en skýjað með köflum og líkur á stöku síðdegisskúrum sunnantil á landinu. Hiti fimm til fjórtán stig, hlýjast sunnanlands.
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofunni að í dag færist miðja grunnrar lægðar yfir landið með tilheyrandi regnsvæði og verður því víða vætusamt. Þó verður líklega lítil úrkoma á norðvestanverðu landinu.
Á morgun rofar til sunnan heiða og verður bjart með köflum þegar kemur fram á daginn, en þó má búast við síðdegisskúrum á stöku stað. Hlýnar þar sem sólin nær að skína, upp í um þrettán til fjórtán stig þegar best lætur sunnanlands.
Að sögn veðurfræðings gera spár síðan ráð fyrir að um helgina færist hlýr loftmassi af suðlægum uppruna yfir landið.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað og þurrt að mestu á norðanverðu landinu með hita 3 til 7 stig. Bjart með köflum sunnanlands, en dálitlir skúrir síðdegis og hiti 8 til 13 stig.
Á laugardag: Suðaustan 8-13 m/s og lítilsháttar væta sunnan- og vestanlands. Hægari vindur og bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast fyrir norðan.
Á sunnudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað vestanlands, en annars yfirleitt léttskýjað. Hiti víða 12 til 18 stig.
Á mánudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og skýjað, en þurrt að mestu. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast inn til landsins.
Á þriðjudag: Hægir norðvestanvindar og víða dálítil væta, en þurrt suðaustanlands. Kólnandi veður.