Skoðun

SÁÁ kært til Em­bættis land­læknis og héraðs­sak­sóknara

Ómar Már Jónsson skrifar

Það er alvarlegt mál að Sjúkratryggingar Íslands hefur eftir fjölda samtala og bréfaskriftir við stjórn og framkvæmdastjóra SÁÁ, gefist upp og kært samtökin bæði til Embættis landlæknis og héraðssaksóknara fyrir það að hafa farið gegn lögum, brotið gegn þeim greiðslusamningi sem í gildi er milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ.

Endurkrafa Sjúkratrygginga á stjórn SÁÁ er hvorki meira né minna en 175 millj.kr. sem til er komið vegna tilhæfulausra reikninga og vanefnda á þjónustu og þjónustumagni SÁÁ.

Ástæðuna fyrir kærunni má rekja til þess að þegar að Covid skall á og rekstarumhverfi samtakanna breyttust ákvað stjórn SÁÁ að endurskilgreina upp á sitt einsdæmi ákvæði í samninginum sér í hag án þess að eiga samtal um það áður við Sjúkratryggingar og óska eftir endurskoðun samnings vegna breyttra forsenda.

Um er að ræða alvarleg stjórnendamistök og hefur verið áhugavert að fylgjast með viðbrögðum SÁÁ vegna ásakanna sem hefur verið eftirfarandi.

  • „Ari Matthíasson, starfsmaður Sjúkratrygginga hafi horn í síðu samtakanna og þess vegna hafi SÁÁ verið kærð”.
  • „Þetta er allt byggt á misskilningi hjá Sjúkratryggingum Íslands”.
  • „Stjórn SÁÁ harmar framgöngu Sjúkratrygginga Íslands gagnvart SÁÁ”.

Mestu ábyrgðina á rekstri SÁÁ ber stjórn og formaður stjórnar samtakanna og við jafn alvarlegar ásakanir ber stjórn að taka fulla ábyrgð á framhaldinu. Það fyrsta er að viðurkenna alvarleg sjórnendamistök, ekki bara gagnvart Sjúkratryggingum heldur einnig gagnvart kjarnastarfsemi samtakanna, gagnvart skjólstæðingum SÁÁ. Í framhaldi ber samtökunum að leita allra leiða til að rétta af stefnuna og halda áfram því góða starfi sem samtökin eru þekkt fyrir.

Það skiptir máli fyrir okkur öll.

Höfundur er náinn aðstandandi og stuðningsmaður um styrk og trúverðugleika SÁÁ.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×