Lífið

Hjónin eiga von á sínu öðru barni

Elísabet Hanna skrifar
Hjónin eiga von á sínu öðru barni.
Hjónin eiga von á sínu öðru barni. Getty/Bruce Glikas

Modern Family leikarinn Jesse Tyler Ferguson og eiginmaður hans leikarinn Justin Mikita eiga von á sínu öðru barni. Jesse deildi gleðifréttunum á samfélagsmiðli sínum en fyrir eiga þeir tæplega tveggja ára son.

„Stækkandi fjölskyldan okkar verður fjögurra manna fjölskylda í haust,“

sagði hann í tilkynningunni. Hann nýtti einnig vettvanginn til þess að tala um skotárásina sem átti sér stað í skólanum í Uvalde Texas, réttindi kvenna og réttindi trans fólks. Hjónin standa fyrir óhagnaðardrifnum góðgerðasamtökum sem standa fyrir jafnrétti og styrkja málstaðina. Hann sagði meðal annars:

„Eins og meirihluti fólks í þessu landi núna, erum við niðurbrotnir yfir árásunum um allt land. Allt frá tilgangslausu byssuofbeldi til ríkisárása á trans fjölskylduna okkar og árásir á ákvörðunarrétt um frjósemi kvenna.“

„Við erum svo spenntir að fá litla manneskju til liðs við stækkandi fjölskylduna okkar og svo stoltir af því að styðja valið um að gera það.“

Tengdar fréttir

Björg og Tryggvi eiga von á barni

Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson eiga von á barni. Frá þessu greinir Björg á Instagram.

Shay Mitchell á von á öðru barni

Leikkonan Shay Mitchell á von á sínu öðru barni með kærastanum Matte Babel en fyrir eiga þau eina dóttur. Shay er líklega þekktust fyrir leik sinn í Pretty Little Liars og You en hún stofnaði og rekur einnig fyrirtækið BÉIS.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.