Lífið

Billie Eilish og kærastinn hætt saman

Bjarki Sigurðsson skrifar
Billie Eilish og Matthew Tyler Vorce eru hætt saman. 
Billie Eilish og Matthew Tyler Vorce eru hætt saman.  vísir/getty

Söngkonan Billie Eilish og kærasti hennar, leikarinn Matthew Tylor Vorce, eru hætt saman. Vorce greinir sjálfur frá þessu á Instagram-síðu sinni.

„Enginn hélt framhjá neinum. Sambönd enda. Það er ekki flóknara en það. Að búa til sögusagnir og að ljúga á internetinu er hættulegt,“ skrifaði leikarinn á Instagram-síðu sína í dag en samkvæmt honum hefur fólk verið að dreifa lygasögum um að samband þeirra hafi endað vegna framhjáhalds.

Færslan sem Vorce setti á Instagram-síðu sína.Skjáskot

Tíu árum munar á Eilish og Vorce en samband þeirra entist í rúmt ár. Eilish hefur sjálf ekki tjáð sig um sambandsslitin, hvorki á Instagram, né í fjölmiðlum.

Billie hefur hlotið ótal verðlauna fyrir tónlist sína, nú síðast Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda lagið með No Time to Die og er úr samnefndri James Bond-mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.